Hringbraut Nýr spítali að rísa.
Hringbraut Nýr spítali að rísa. — Morgunblaðið/Eggert
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur áhyggjur af því að kostnaður við verkefni Nýs Landspítala ohf. muni aukast.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur áhyggjur af því að kostnaður við verkefni Nýs Landspítala ohf. muni aukast.

Hann telur bæði að kostnaður við verkið af núverandi umfangi verði umfram áætlanir og einnig að verulegur kostnaður muni fylgja því að lagfæra eldri byggingar spítalans umfram það sem reiknað er með.

Í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Bergþórs kemur fram að undirbúningur standi yfir að heildstæðri áætlanagerð fyrir verkefnið. Útilokað sé að henni verði lokið fyrr en í lok árs 2022 því enn eigi eftir að taka ákvarðanir um hvað af eldra húsnæði spítalans verður nýtt og hvaða breytingar þurfi að gera. 6