Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur ákveðið flutninga forstöðumanna sex sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni, sem taka formlega gildi 1. ágúst.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur ákveðið flutninga forstöðumanna sex sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni, sem taka formlega gildi 1. ágúst.

Þórir Ibsen tekur við af Gunnari Snorra Gunnarssyni sem sendiherra í Peking og kemur Gunnar til starfa í ráðuneytið.

Hlynur Guðjónsson hefur gegnt stöðu aðalræðismanns í New York til þessa en mun taka við af Pétri Ásgrímssyni sem sendiherra í Ottawa. Pétur mun starfa í ráðuneytinu en Nikulás Hannigan, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu, mun fylla í skarð Hlyns sem aðalræðismaður í New York.

Guðni Bragason tók við embætti sendiherra í Nýju-Delí á Indlandi 1. júlí. Kristín A. Árnadóttir tók við af honum sem fastafulltrúi í Vín mánuði áður.

Matthías G. Pálsson verður fastafulltrúi í Róm en hann leysir af hólmi Stefán Jón Hafstein sem flyst til starfa í ráðuneytið.