Stjarnan Markvörðurinn Darija Zecevic lék í tvö ár með ÍBV.
Stjarnan Markvörðurinn Darija Zecevic lék í tvö ár með ÍBV. — Ljósmynd/ÍBV
Handknattleiksmarkvörðurinn Darija Zecevic sem hefur leikið með ÍBV undanfarin tvö ár hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna.
Handknattleiksmarkvörðurinn Darija Zecevic sem hefur leikið með ÍBV undanfarin tvö ár hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna. Hún er 23 ára gömul, er uppalin hjá Buducnost Podgorica, sterkasta félagsliði Svartfjallalands, en lék einnig með Danilovgrad og síðan í eitt ár með Koper í Slóveníu áður en hún kom til Vestmannaeyja. Hún var valin besti markvörðurinn í Slóveníu það tímabil. Zecevic hefur enn fremur leikið með öllum yngri landsliðum Svartfjallalands.