Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins frá Selfossi, mun stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum 1. ágúst.
Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins frá Selfossi, mun stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum 1. ágúst. „Magnús hefur um árabil verið einstaklega eftirsóttur trúbador samhliða því að spila með hljómsveit sinni vítt og breitt um landið við hin ýmsu tilefni og meðal annars komið fram á Þjóðhátíð óslitið síðan 2016,“ segir í tilkynningu vegna þessa og að boðið verði upp á lifandi streymi í samvinnu við Senu live frá söngnum í fyrsta sinn.