Cluj Rúnar Már Sigurjónsson spilar næst með CFR á Gíbraltar.
Cluj Rúnar Már Sigurjónsson spilar næst með CFR á Gíbraltar. — Ljósmynd/CFR Cluj
Rúnar Már Sigurjónsson og samherjar hans í rúmenska meistaraliðinu CFR Cluj eru komnir í aðra umferð Meistaradeildar karla í fótbolta eftir framlengdan leik gegn Borac Banja Luka. Þeir töpuðu 2:1 en unnu einvígið 4:3 samanlagt.
Rúnar Már Sigurjónsson og samherjar hans í rúmenska meistaraliðinu CFR Cluj eru komnir í aðra umferð Meistaradeildar karla í fótbolta eftir framlengdan leik gegn Borac Banja Luka. Þeir töpuðu 2:1 en unnu einvígið 4:3 samanlagt. Alexandru Chipciu var hetja CFR þegar hann minnkaði muninn í 2:1 þegar tvær mínútur voru eftir af framlengingu. Rúnar lék allar 120 mínúturnar. CFR vann því einvígið 4:3 samanlagt og mætir meistaraliði Gíbraltar, Lincoln Red Imps, í annarri umferð.