ENDURKOMA Matt Damon mun snúa aftur í litlu hlutverki í næstu mynd um þrumuguðinn Þór, Thor: Love and Thunder, sem kemur út á næsta ári.
ENDURKOMA
Matt Damon mun snúa aftur í litlu hlutverki í næstu mynd um þrumuguðinn Þór,
Thor: Love and Thunder,
sem kemur út á næsta ári. Damon lék leikara frá Ásgarði sem lék Loka í leikriti sem sett var upp til heiðurs honum í þriðju myndinni um þrumuguðinn,
Thor: Ragnarok
. Taika Waititi leikstýrði myndinni og kom með ferskan blæ inn í kvikmyndaröð Marvel með sínum einstaka húmor. Waititi mun einnig leikstýra þeirri næstu og fóru tökur fram í Ástralíu fyrir stuttu. Sást þar til Damons og þegar hann var spurður út í málið staðfesti hann endurkomu sína sem hinn ónefndi leikari.