— AFP
Vísindamenn við dýralæknadeild háskólans í Utrecht rannsaka nú hræ af langreyði, sem fannst á perulaga stefni skips í höfninni í Terneuzen í Hollandi á þriðjudag.

Vísindamenn við dýralæknadeild háskólans í Utrecht rannsaka nú hræ af langreyði, sem fannst á perulaga stefni skips í höfninni í Terneuzen í Hollandi á þriðjudag. Maðurinn á myndinni hefur komið sér rækilega fyrir í innyflum dýrsins og mundar þar verkfæri sín til sýnatöku. Vísindamenn telja að skipið hafi siglt á hvalinn og hann hafi verið á lífi þegar það gerðist og segja að blæðing undir húð hans þar sem skipið lenti á honum sé til marks um það.

Hvalurinn hafði greinilega nýverið gleypt átu og var hún ekki öll komin niður í maga. Telja þeir það vísbendingu um að dýrið hafi ekki verið veikt. Bendir allt til að hvalurinn hafi drepist við áreksturinn við skipið og einhvern veginn fest á perunni, sem er neðst á stefninu.

Langreyðurin var 15 metrar á lengd, en þær geta orðið allt að 27 metrar og vegið 80 tonn. Mannfjöldi safnaðist saman til að fylgjast með þegar hvalurinn var dreginn á land og vildu einhverjir fá sýnishorn. Vísindamennirnir tóku það ekki í mál, enda væri tegundin í útrýmingarhættu og bannað að vera með hval eða hluta af hval í sínum fórum án sérstaks leyfis.