Johansson fer í hart við Disney.
Johansson fer í hart við Disney. — AFP
PENINGAR Scarlett Johansson hefur kært Disney fyrir brot á samningi sínum fyrir leik sinn við myndina Black Widow sem kom út fyrr í sumar.
PENINGAR Scarlett Johansson hefur kært Disney fyrir brot á samningi sínum fyrir leik sinn við myndina Black Widow sem kom út fyrr í sumar. Vegna kórónufaraldursins hafa nokkur kvikmyndastúdíó brugðið á það ráð að gefa kvikmyndir sínar út á streymisveitum á sama tíma og þær eru frumsýndar í kvikmyndahúsum. Þetta var gert þegar Black Widow kom út þar sem hún fór á Disney+ er hún var frumsýnd í bíóhúsum. Samningur Johansson var bundinn við miðasölu og því telur hún sig hafa tapað um 50 milljónum dollara vegna útgáfu myndarinnar á Disney+.