Tatjana Schoenmaker
Tatjana Schoenmaker
Suðurafríska sundkonan Tatjana Schoenmaker setti í gær nýtt heimsmet í 200 metra bringusundi þegar hún varð ólympíumeistari í greininni í Tókýó. Schoenmaker sló ólympíumetið í undanúrslitunum þegar hún synti á 2:19,16 mínútum.

Suðurafríska sundkonan Tatjana Schoenmaker setti í gær nýtt heimsmet í 200 metra bringusundi þegar hún varð ólympíumeistari í greininni í Tókýó.

Schoenmaker sló ólympíumetið í undanúrslitunum þegar hún synti á 2:19,16 mínútum. Í úrslitasundinu gerði hún enn betur og sló heimsmetið með frábærum endaspretti og synti á 2:18,95 mínútum. Hún er fyrsta suðurafríska konan sem fær ólympíugull í sundi á þessari öld en Schoenmaker var áður búin að fá silfur í 100 metra bringusundinu.

Emma McKeon frá Ástralíu sigraði í 100 metra skriðsundi á ólympíumeti, 51,96 sekúndum. Sjötta gull Ástrala í sundinu á þessum leikum.

Heimsmeistararinn Evgeni Rilov frá Rússlandi fékk sitt annað gull á leikunum þegar hann sigraði í 200 metra baksundi en hann hafði áður unnið 100 metra baksundið. Rilov setti ólympíumet og synti á 1:53,27 mínútum. sport@mbl.is