Peyjar og pysjur hjóla í Herjólfsdal til þess að virða fyrir sér Þjóðhátíðina, sem ekki verður haldin um verslunarmannahelgina eins og vant er. Hvað sem síðar verður. Að þessu sinni verður brekkusöngurinn einsöngur.
Peyjar og pysjur hjóla í Herjólfsdal til þess að virða fyrir sér Þjóðhátíðina, sem ekki verður haldin um verslunarmannahelgina eins og vant er. Hvað sem síðar verður. Að þessu sinni verður brekkusöngurinn einsöngur. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tæplega verður mikilla átaka að vænta á vinnumarkaði í haust þegar endurskoðunarákvæði lífskjarasamninganna svonefndu virkjast. Ragnar Þór Ingólfsson , formaður VR, telur ekki mikla stemningu fyrir því í ljósi veirunnar og efnahagsafleiðinga hennar.

Tæplega verður mikilla átaka að vænta á vinnumarkaði í haust þegar endurskoðunarákvæði lífskjarasamninganna svonefndu virkjast. Ragnar Þór Ingólfsson , formaður VR, telur ekki mikla stemningu fyrir því í ljósi veirunnar og efnahagsafleiðinga hennar.

Síðustu útihátíðir sumarsins fóru fram um liðna helgi, en vegna nýrra samkomutakmarkana þurfti að aflýsa öllu hátíðahaldi um verslunarmannahelgina. Þar er áfallið án vafa mest í Vestmannaeyjum , en þar íhuga eyjaskeggjar að sækja bætur til ríkisins vegna þeirra búsifja.

Ein þeirra fjöldasamkoma, sem kunna að vera í uppnámi, er landsfundur Sjálfstæðisflokksins, sem á að setja hinn 27. ágúst, en kann að þurfa að fresta verði samkomutakmörkunum ekki aflétt. Fundinn sækja að jafnaði um 1.500 manns.

Um 70% smita voru meðal bólusettra, sem tæplega kom á óvart í ljósi þess að um 85% 16 ára og eldri Íslendinga hafa verið bólusett. Eins var eitthvað um endursýkingar , en í nær öllum tilvikum voru einkenni væg ef nokkur.

Farsóttarhúsin tvö fylltust og því var hinu þriðja bætt við þegar 130 voru komnir í einangrun og fór enn fjölgandi.

Gosið í Geldingadölum færðist talsvert í aukana í vikunni.

Fjóla Hrund Björnsdóttir hafði betur í oddvitakosningu Miðflokksins í Reykjavík, en þar laut þingmaðurinn Þorsteinn Sæmundsson í lægra haldi.

·

Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi við komu til landsins, en nú þurfa allir komufarþegar, bólusettir eða með staðfesta fyrri sýkingu, að sýna innan við þriggja daga gamalt neikvætt Covid-próf áður en þeir fá að ganga um borð í flugvél ytra.

Talsvert álag var í sjúkraflutningum vegna farsóttarinnar, en þeir eru nú um 25 á dag að meðaltali.

Af 609 manns, sem voru undir eftirliti Covid-deildar á mánudag voru 593 með væg eða engin einkenni .

Lík fundust á fjallstindi K2, en kennsl voru borin á samferðamenn Johns Snorra Sigurjónssonar , sem týndust á fjallinu í febrúarbyrjun.

Í Vestmannaeyjum er áformað að boða til Þjóðhátíðar síðsumars leyfi sóttvarnareglur það. Eftir sem áður verður brekkusöng streymt á netinu nú um helgina.

Sögulegar sættir tókust innan Viðreisnar, þegar Benedikt Jóhannesson , stofnandi og fyrrverandi formaður flokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir , núverandi formaður flokksins, urðu ásátt um að Benedikt mætti með fullri reisn stofna málfundafélagið Endurreisn innan vébanda flokksins. Jafnframt náði Benedikt því í gegn að í framtíðinni yrði leitast við að halda prófkjör í flokknum.

Alþýðusamband Íslands metur nú stöðuna í kjaramálum fyrir haustið og mun kappkosta að viðhalda kaupmætti umbjóðenda sinna. Hins vegar hefur það ekki áhyggjur af langtímaatvinnuleysi .

Lottóspilari gaf sig fram til þess að ná í 55 milljóna króna vinning , sem kom á miða hans fyrir einum og hálfum mánuði. Hann hafði ekki gáð að vinningnum fyrir nú og sagði raunar hundaheppni að hann hefði ekki glatað miðanum.

·

Halldór Benjamín Þorbergsson , framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að atvinnustig í landinu þurfi að vera í brennidepli í komandi kjaraviðræðum. Aukið atvinnuleysi væri óásættanlegt. Sömuleiðis þurfi að ræða efndir stjórnvalda á fyrirheitum þeirra í tengslum við samningana.

Mikill erill hefur verið í Leifsstöð , bæði vegna farþega á leið úr og til landsins. Þrátt fyrir að þar ræði engan veginn um sama fjölda og fyrir plágu, þá er umstangið vegna sóttvarna mun meira.

Blíðviðri var á höfuðborgarsvæðinu, en sumarið hafði látið bíða lengur eftir sér þar en í öðrum landshlutum. Þrátt fyrir að allar útihátíðir væru úr kortunum fyrirhuguðu margir ferðir úr bænum um helgina, í sumarbústaði og tjaldútilegur. Aðsókn á tjaldsvæði fór þó rólega af stað.

123 reyndust smitaðir í skimunum þriðjudagsins en aldrei hafa fleiri greinst á einum degi frá upphafi faraldursins hér á landi. Sem fyrr voru þó sárafáir með mikil sjúkdómseinkenni.

Samkomulag tókst við Breta um að fólki á aldrinum 18-30 sé heimilt að búa og starfa í Bretlandi í allt að tvö ár án sérstaks leyfis. Hið sama á við um unga Breta, sem koma vilja hingað til lands.

Halldóra Mogensen , þingmaður Pírata, hefur fengið stjórnarmyndunarumboð flokksins og fékk hún sérstakt erindisbréf þar að lútandi. Alþingiskosningar eiga að fara fram 25. september.

·

Faraldurinn hélt áfram að breiðast út í smitum talið, en eftir sem áður voru langflestir hinna smituðu með lítil eða engin einkenni. Landspítalinn kvartaði undan álagi, því þótt lítið væri um innlagnir var mikið um að vera á göngudeild .

Tveir heimilismenn á elliheimilinu Grund smituðust af starfsmanni, en þeir voru báðir bólusettir.

Það er víðar órói en á Reykjanesskaga, þar sem enn flæðir hraun í Meradali með aukinni eldvirkni. Bárðarbunga í norðvestanverðum Vatnajökli þenst út og mældust snarpir jarðskjálftar. Sömuleiðis hefur aukin skjálftavirkni verið í Kötlu .

Að sögn Ölgerðarinnar urðu nýjar samkomutakmarkanir til þess að breyta neyslumynstri í aðdraganda verslunarmannahelgar. Sala til bara og Vestmannaeyja sé ljóslega minni, en hins vegar beri meira á beinum innkaupum neytenda á veigum.

Matvælaframleiðendur höfðu svipaða sögu að segja. Minna gengi t.d. út af hamborgurum en meira af lærum, sem endurspegli öðruvísi helgardvöl en fyrirhuguð var. Mikið sé grillað þessa dagana í blíðunni, enda uppsöfnuð grillþörf á höfuðborgarsvæðinu.

Guðrún Hafsteinsdóttir , oddviti á lista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, telur að átakalínan í komandi kosningum liggi um heilbrigðismálin. Hún segir flokk sinn eiga að gera kröfu um heilbrigðisráðuneytið í ríkisstjórnarsamstarfi.

Á daginn kom að Ívar J. Arndal , forstjóri ÁTVR, aflaði sér ekki lögfræðiálits áður en hann kærði netverslun með vín til lögreglu og skatts, en síðari kæran reyndist vera tilhæfulaus. Hefur Ívar verið kærður til lögreglu fyrir rangar sakargiftir .

·

Kvartað var undan því að heilbrigðu og einkennalausu fólki væri haldið lengur í einangrun en reglugerð heimili.

Ferðaþjónustan kvartaði undan því að krafa um PCR-próf fyrir komu til landsins fæli ferðamenn frá. Á móti kemur að þeim, sem ekki tíma að taka það, er sennilega ekki laust um fé eftir til komuna til landsins.

Umsjónarmaður farsóttarhúsa kvartaði undan alvarlegu ástandi í þeim, þau væru stútfull af fólki og fyrirsjáanlegt að meira húsrými vantaði.

Eldfjallafræðingurinn Þorvaldur Þórðarson segir að gosið í Geldingadölum sé „bara í góðum gír“ og að það geti vel staðið í nokkur ár.

Ísland varð gulmerkt á sóttvarnarkorti Evrópusambandsins, sem kann að hafa einhver áhrif á ferðamannastraum þaðan. Bandaríkjamenn, sem hafa verið duglegastir við að ferðast hingað að undanförnu, kæra sig hins vegar kollótta um þá litamerkingu. Í Bretlandi er Ísland enn á grænum lista.

Farið var að bólusetja barnshafandi konur með bóluefni frá Pfizer og Moderna.

Allt er klárt fyrir þjóðhátíð í Eyjum, en í Herjólfsdal fær enginn að koma nema Magnús Kjartan Eyjólfsson , sem flytur einsöng í Brekkunni þetta árið. Eyjamenn hafa hins vegar verið að tjalda í garðinum, hver hjá sér, og viðbúið að það verði eitthvað vakað í bænum.