Joris Rademaker
Joris Rademaker
Joris Rademaker opnar myndlistarsýningu í SÍM-salnum, Hafnarstræti 16, í dag, föstudag, kl. 16.

Joris Rademaker opnar myndlistarsýningu í SÍM-salnum, Hafnarstræti 16, í dag, föstudag, kl. 16. Sýningin nefnist Vöxtur og tími og er innsetning þar sem myndir af höndum og fótum listamannsins eru málaðar á ríspappír með svörtum lit og einnig fundnir hlutir úr náttúrunni. Verkin, bæði þau tví- og þrívíðu, mynda samtal hvort við annað, segir í tilkynningu og eru innblásin af vaxtarferli náttúrunnar. Margt er táknrænt og byggir titill sýningarinnar á því. Verkin eru öll frá árinu 2020 og þessu ári.

Joris stundaði nám í mynd- og handmennt í Tilburg í Hollandi 1977-83 og í AKI listaakademíunni í Enschede í Hollandi 1983-86. Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar á Íslandi og erlendis.