Blúsbær Blúsinn ómar á Patreksfirði.
Blúsbær Blúsinn ómar á Patreksfirði.
Tíunda blúshátíðin á Patreksfirði verður haldin í dag og á morgun, 3. og 4. september og munu fjórar hljómsveitir koma fram, þ.e. Blúsband Þollýar, Fógetarnir, R G P 103 blús band og Johnny and the rest.
Tíunda blúshátíðin á Patreksfirði verður haldin í dag og á morgun, 3. og 4. september og munu fjórar hljómsveitir koma fram, þ.e. Blúsband Þollýar, Fógetarnir, R G P 103 blús band og Johnny and the rest. Á Patreksfirði er stórt félagsheimili sem rúmar þann takmarkaða fjölda sem leyfður er á fjöldasamkomum, 200 manns, og tjald og húsbílastæði er bak við húsið. Hátíðin ber yfirskriftina Blús milli fjalls og fjöru og er nú haldin í tíunda sinn.