Saurbæjarkirkja á Rauðasandi.
Saurbæjarkirkja á Rauðasandi. — Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.

ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Organistinn okkar Kriztina Kalló Szklenár er í 9 mánaða leyfi. Við bjóðum Hrafnkel Karlsson velkominn til starfa með okkur í Árbæjarkirkju. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng.

ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 13. Gætið að nýjum messutíma sem hafður verður til næsta vors. Séra Aldís Rut Gísladóttir prestur í Laugardalsprestakalli prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Áskirkju syngja, orgelleikari er Bjartur Logi Guðnason. Heitt á könnunni eftir guðsþjónustuna. Sunnudagaskólinn hefst síðar í mánuðinum og verður auglýstur þegar þar að kemur. Hann verður kl. 13 á sama tíma og almenna guðsþjónustan.

BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11, upphaf barnastarfsins á haustmisseri. Lærisveinar hans leiða sönginn. Ástvaldur er organisti, Sigrún Ósk, Vilborg Ólöf og sr. Hans Guðberg leiða stundina.

BORGARNESKIRKJA | Við hlökkum til að bjóða ykkur velkomin í fyrstu guðsþjónustu haustins kl. 11. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason þjónar fyrir fyrir altari. Steinunn Árnadóttir leikur á orgel og leiðir sálmasöng, ásamt kirkjukór Borgarneskirkju.

BREIÐHOLTSKIRKJA |

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Gleði og söngur, saga um Jesú og bænir. Steinunn Þorbergsdóttir og Steinunn Leifsdóttir kynna vetrarstarfið. Sr. Magnús Björn Björnsson kynnir Alfa námskeiðið og starf Alþjóðlega safnaðarins. Organisti er Örn Magnússon. Kaffi og meðlæti eftir guðsþjónustu.

Alþjóðlegi söfnuðurinn: Guðsþjónusta á ensku kl. 14. ICB: Worship & Prayer service 14. Toshiki Toma and Ása Layfey Sæmnudsdóttir, pastors for immigrants and refugees.

BÚSTAÐAKIRKJA | Síðasta kvöldmessa sumarsins kl. 20. Sr. María G. Ágústsdóttir hefur umsjón með stundinni ásamt messuhópi. Þórður Sigurðarson og félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju sjá um fjölbreytta tónlist. Eldriborgarastarfið hefst 8. sept. kl. 12.30-16. Karlakaffi 10. sept. kl. 10.

DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr Gunnar Sigurjónsson. Organisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Léttar veitingar að messu lokinni.

Paramessa í Hjallakirkju kl. 17. Sr. Bolli Pétur Bollason og sr. Sunna Dóra Möller. Matthías V. Baldursson leikur á píanó og Friðrik Karlsson á gítar. Lofjörðarhópur Hjallakirkju leiðir söng. Veitingar að lokinni messu

DÓMKIRKJAN | Guðþjónusta klukkan 11. Prestur er Elínborg Sturludóttir, Kári Þormar er organisti og Dómkórinn syngur.

EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagur: Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir leiðir stundina ásamt Berglindi Hönnudóttur fræðslufulltrúa og Torvald Gjerde organista. Kynningarfundur með væntanlegum fermingarbörnum á Héraði og foreldrum þeirra eftir messu. Sunnudagaskólinn hefst 12. september kl. 10.30. Þorgeir Arason, sóknarprestur.

FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Meðhjálpari er Helga Björg Gunnarsdóttir. Kaffisopi eftir stundina.

FRIÐRIKSKAPELLA | Játningarbundin evangelísk-lútersk kristni heldur guðsþjónustu 5. september kl. 11. Sakarías Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari.

FRÍKIRKJAN Reykjavík | Innsetningarathöfn sunnudag kl. 14. Þá verður dr. Sigurvin Lárus Jónsson settur prestur við Fríkirkjuna í Reykjavík.

Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson forstöðumaður leiðir innsetningu og dr. Sigurvin Lárus Jónsson flytur prédikun sem ber yfirskriftina Frjálslynd og framsækin Fríkirkja.

Að lokinni guðsþjónustu verður kaffi í safnaðarheimilinu, þar sem dr. Sigurvin segir ferðasögu af námi sínu og kennslu við þrjá erlenda háskóla.

GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Sveinbjörn R. Einarsson þjónar fyrir altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar.

GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Magnús Erlingsson og sr. Sigurður Grétar Halldórsson þjóna. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson. Fermingarbörn í Foldaskóla og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðnir velkomnir.

Sunnudagaskólinn hefst á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón með honum hefur Ásta Jóhanna Harðardóttir.

GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng | Guðsþjónustan kl. 13. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Sr. Magnús Erlingsson prédikar. Vox Populi leiðir söng.

GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. María Guðrúnar Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi, Kristjáni Hrannari Pálssyni organista og Kirkjukór Grensáskirkju. Kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12 og núvitundarstund á fimmtudag kl. 18.15-18.45, einnig á netinu. 12-spora starfið er með opinn fund á fimmtudag kl. 19.15-21.15.

GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fyrsta fjölskylduguðsþjónusta vetrarins kl. 11. Sr. Pétur Ragnhildarson æskulýðsprestur leiðir stundina ásamt Ásbjörgu og Gyðu barnakórsstjórum. Eftir stundina grillum við pylsur og fáum djús hjá Lovísu kirkjuverði!

HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sunnudagaskólinn hefst. Lalli töframaður sýnir listir sínar. Fermingarbörn hvött til að koma. Prestur er Jónína Ólafsdóttir. Organisti er Guðmundur Sigurðsson.

HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Prestar: Sigurður Árni Þórðarson og Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Messuhópur aðstoðar. Organisti: Steinar Logi Helgason. Kvartett syngur. Umsjón barnarstarfs: Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. Eftir messu verður aðalfundur Hallgrímssóknar.

HÁTEIGSKIRKJA | Ferming kl. 10.30. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prestar eru Helga Soffía Konráðsdóttir og Eiríkur Jóhannsson.

HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta kl. 17. Hjónin sr. Bolli Pétur Bollason og sr. Sunna Dóra Möller leiða stundina sem nefnist paramessa. Matthías V. Baldursson stjórnar tónlistinni og leikur á píanó, Friðrik Karlsson á gítar og hinn nýstofnaði Lofgjörðarhópur Hjallakirkju sér um sönginn. Eftir stundina verður boðið upp á mat í safnaðarsalnum gegn vægu gjaldi.

HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Ninna Sif Svavarsdóttir, Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna syngur, organisti er Miklós Dalmay. Fermingarbörn og foreldrar boðin sérstaklega velkomin!

KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 í Borgum, safnaðarheimili Kópavogskirkju. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.

LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11 og sunnudagaskóli í safnaðarheimili kirkjunnar. Aldís Rut Gísladóttir prestur þjónar, Magnús Ragnarsson er organisti og félagar úr kór Langholtskirkju syngja. Kaffisopi eftir messu í safnaðarheimilinu.

LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Elísabet Þórðardóttir organisti og Kór Laugarneskirkju annast tónlistarflutning. Sr. Jón Ragnarsson þjónar fyrir altari og prédikar. Kaffi og samvera í safnaðarheimilinu á eftir. Sunnudagaskólinn hefur göngu sína. Stundin byrjar á sameiginlegri stund í kirkjunni en síðan fara börnin til sinnar samveru í safnaðarheimilinu. Eftir sunnudagaskólann er boðið upp á kirkjudjús og kex.

NESKIRKJA | Guðsþjónusta og upphaf sunnudagaskólans. Eftir sameiginlegt upphaf færir sunnudagaskólinn sig yfir í safnaðarheimilið þar sem við tekur söngur, leikur og sögur. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Hilda María Sigurðardóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Kristrún Guðmundsdóttir auk Ara Agnarssonar sem leikur undir.

Í guðsþjónustunni syngja félagar úr kór Neskirkju og leiða söng undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur. Prestur er Steinunn A. Björnsdóttir.

Hressing eftir helgihald.

SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11, söngur og gleði, Biblíusaga og brúðuleikrit. Ávaxtahressing og mynd til að lita í lokin.

Guðsþjónusta kl. 13, ath. breyttan messutíma, Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar, Kór Seljakirkju syngur og Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgelið. Messukaffi í lokin.

SELTJARNARNESKIRKJA | Uppskeruguðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu. Grænmetismarkaður verður haldinn eftir guðsþjónustuna til styrktar innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar.

VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónustakl 11. Upphaf sunnudagaskólans. Matthildur Bjarnadóttir og fræðarar sunnudagaskólans stýra guðsþjónustunni. Barnakórar syngja undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar.

VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 10. Fjölbreytt og fræðandi stund í umsjá Benedikts Sigurðssonar. Börnin fá fjársjóðskistu að gjöf og safna í hana myndum, fá eina mynd í hverjum sunnudagaskóla sem verður alla sunnudaga í vetur kl. 10.