Jessica Chastain leikur í þáttunum.
Jessica Chastain leikur í þáttunum. — AFP
Endurgerð Ísraelinn Hagai Levi ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en hann hefur endurgert hina rómuðu sjónvarpsseríu Ingmars Bergmans Scenes from a Marriage frá 1973 sem síðar varð að kvikmynd.
Endurgerð Ísraelinn Hagai Levi ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en hann hefur endurgert hina rómuðu sjónvarpsseríu Ingmars Bergmans Scenes from a Marriage frá 1973 sem síðar varð að kvikmynd. Jessica Chastain og Oscar Isaac feta í fótspor Liv Ullman og Erlands Josephsons og leika hjón sem leggjast í djúpstæða krufningu á hjónabandi sínu, lífinu og tilverunni. Nýju þættirnir gerast í samtímanum og verða frumsýndir um næstu helgi á HBO.