Beanie Feldstein leikur Monicu Lewinsky.
Beanie Feldstein leikur Monicu Lewinsky. — AFP
Glæpir Fyrst var það O.J.
Glæpir Fyrst var það O.J. Simpson, síðan Gianni Versace en í þriðju þáttröðinni af American Crime Story verða Monica Lewinsky, Linda Tripp og hinar konurnar sem tengdust ákærunni á hendur Bill Clinton Bandaríkjaforseta til embættismissis árið 1998 í forgrunni. Fram hefur komið að Lewinsky þótti hugmyndin til að byrja með afleit en eftir að höfundur þáttanna, Ryan Murphy, lagði ofuráherslu á að þeir yrðu gerðir með blessun hennar skipti Lewinsky um skoðun. Ekki nóg með það, hún er líka einn framleiðenda þáttanna. Beanie Feldstein fer með hlutverk Lewinsky í Impeachment: American Crime Story, sem frumsýndur verður á sjónvarpsstöðinni FX vestra á þriðjudaginn, Sarah Paulson leikur Lindu Tripp og Clive Owen Bill Clinton.