30 ára Ásgeir fæddist í Keflavík og býr þar enn. „Ég rek Bílaleiguna Geysi í Keflavík. Þetta er fjölskyldufyrirtæki og ég hef starfað þarna alla tíð frá því ég var 13 ára og var að þrífa bíla. Ég hef ýmsa fjöruna sopið í þessum geira.
30 ára Ásgeir fæddist í Keflavík og býr þar enn. „Ég rek Bílaleiguna Geysi í Keflavík. Þetta er fjölskyldufyrirtæki og ég hef starfað þarna alla tíð frá því ég var 13 ára og var að þrífa bíla. Ég hef ýmsa fjöruna sopið í þessum geira. Það er búið að vera brjálað að gera í sumar, en svo förum við inn í einhvern skrýtinn vetur núna. Það eru alltaf svolitlar sveiflur í þessum bransa.“

Ásgeir hefur mikinn áhuga á bílum en þar stoppar ekki boltinn. „Ég er rosalega mikill dellumaður. Hef gaman að útivist, mótorsporti, vélsleðum og stangveiði, svo eitthvað sé nefnt. Ég hef bara gaman að því að njóta lífsins.“ Yfirleitt er tugþúsunda afmælishátíð til heiðurs Ásgeiri á afmælisdaginn, en verður eitthvað færra núna. „Það er venjan að það sé ljósanótt á afmælinu mínu en núna verður þetta aðeins minna, nema maður fari að skjóta upp flugeldum.“

Fjölskylda Eiginkona Ásgeirs er Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, f. 30.6. 1989, og þau eiga börnin Vilhjálm Ísar, f. 2018, og Dagbjörtu Kötlu, f. 2020.