Fagn HK-ingar eru í harðri fallbaráttu í 1. deild kvenna.
Fagn HK-ingar eru í harðri fallbaráttu í 1. deild kvenna. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Danielle Marcano bjargaði stigi fyrir HK þegar liðið heimsótti Grindavík í 1. deild kvenna í knattspyrnu, Lengjudeildinni, á Grindavíkurvelli í gær.
Danielle Marcano bjargaði stigi fyrir HK þegar liðið heimsótti Grindavík í 1. deild kvenna í knattspyrnu, Lengjudeildinni, á Grindavíkurvelli í gær. Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en Helga Guðrún Kristinsdóttir kom Grindavík yfir áður en Danielle Marcano jafnaði metin fyrir HK með marki úr vítaspyrnu. Grindavík er með 17 stig í sjötta sæti deildarinnar en HK er í sjöunda sætinu með 16. ÍA með 14 stig og Augnablik með 11 stig koma þar á eftir en bæði lið eiga leik til góða á Grindavík og HK.