Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Á síðustu dögum hafa uppsjávarskip verið tengd við rafmagn í landi við komuna til Neskaupstaðar, fyrst Vilhelm Þorsteinsson EA í lok síðustu viku og síðan Börkur NK í gær. Unnið er að því að setja búnað til landtengingar í Beiti NK. Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, segir um tímamót að ræða og jákvætt skref í orkuskiptum í sjávarútvegi.
Íslensk fyrirtæki rói öll í sömu átt hvað varði orkuskipti og í sjávarútvegi sé fyrst að nefna þegar ráðist var í rafvæðingu orkufrekra fiskimjölsverksmiðja. Fleiri möguleikar séu til orkusparnaðar með orkuskiptum.
Aflmikil tenging
Í landtengingunni felst að skipið fær raforku úr landi til að kæla aflann, dæla honum á land og sinna annarri raforkunotkun um borð meðan á löndun stendur í stað þess að framleiða orku með vélbúnaði sem nýtir olíu sem orkugjafa.„Hér er um að ræða mikilvægt umhverfismál og ótvírætt framfaraskref. Samkvæmt bestu heimildum er þetta í fyrsta sinn sem fiskiskip er landtengt með svo aflmikilli tengingu en tengingin flytur 500 kW,“ segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Þar kemur fram að með landtengingu er notaður umhverfisvænn, innlendur orkugjafi á meðan löndun úr skipi fer fram í stað innfluttrar olíu og að notkun á umhverfisvænum orkugjöfum styrkir ímynd íslensks sjávarútvegs. Þegar öll uppsjávarskip sem landa í Neskaupstað verða komin með tilheyrandi búnað megi gera ráð fyrir að olíunotkun minnki um 300 þúsund lítra á ári.