— Morgunblaðið/Eggert
Það viðraði ekki vel til útivistar í höfuðborginni í gær. Fjöldi ferðamanna var þó á ferð í miðbænum og sáu flestir sér þann kost vænstan að skýla sér fyrir rigningunni með húfum og litríkum regnkápum.
Það viðraði ekki vel til útivistar í höfuðborginni í gær. Fjöldi ferðamanna var þó á ferð í miðbænum og sáu flestir sér þann kost vænstan að skýla sér fyrir rigningunni með húfum og litríkum regnkápum. Þá var þétt setið á mörgum veitinga- og kaffihúsum í gær. Búast má við því að áfram verði þungbúið í dag og víða vætusamt.