Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik árið 2013, en maðurinn sveik út raftæki, eldsneyti og gjafakort með því að gefa upp kreditkortaupplýsingar móður sinnar og þriggja annarra sem...

Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik árið 2013, en maðurinn sveik út raftæki, eldsneyti og gjafakort með því að gefa upp kreditkortaupplýsingar móður sinnar og þriggja annarra sem hann hafði ekki heimild fyrir.

Samtals sveik maðurinn út vörur fyrir andvirði 2,3 milljóna króna. Brot mannsins áttu sér stað á um fjögurra mánaða tímabili frá ágúst til nóvember árið 2013. Maðurinn er nú búsettur í Svíþjóð og mætti ekki við þingfestingu málsins. Var málið því dæmt að honum fjarstöddum. Tekið er fram í dóminum að rannsókn málsins hafi dregist án framkominnar ástæðu og að ekki hafi komið annað til álita en að skilorðsbinda refsinguna vegna þess hversu langt er um liðið.

Fyrndar kröfur

Fyrirtækin þar sem maðurinn hafði keypt vörurnar fóru fram á skaðabætur vegna málsins, en maðurinn var sýknaður af öllum þeim kröfum þar sem kröfurnar voru fyrndar.