Tónlistarmaðurinn Kanye West er nú nýbúinn að gefa út glænýja plötu, plötuna Donda, og virðast Íslendingar taka henni nokkuð vel því að hvorki meira né minna en 15 lög af plötunni eru nú komin á Tónlistann, þar af þrjú í topp tíu.

Tónlistarmaðurinn Kanye West er nú nýbúinn að gefa út glænýja plötu, plötuna Donda, og virðast Íslendingar taka henni nokkuð vel því að hvorki meira né minna en 15 lög af plötunni eru nú komin á Tónlistann, þar af þrjú í topp tíu. Dóra Júlía greindi frá þessu á K100 á sunnudag.

Nýtt lag er einnig í fyrsta sæti á Tónlistanum en það er lagið Stay með The Kid Laroi og Justin Bieber. Ed Sheeran er hins vegar kominn í annað sæti með lagið sitt Bad Habits eftir að hafa haldið fyrsta sætinu í nokkrar vikur.

Dj Dóra Júlía kynnir Tónlistann á hverjum sunnudegi á K100.