Vonarskarð För í mjúkum mel og eyðilegging á ósnortnu svæði.
Vonarskarð För í mjúkum mel og eyðilegging á ósnortnu svæði. — Ljósmynd/Vatnajökulsþjóðgarður
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Vatnajökulsþjóðgarður hefur tilkynnt til lögreglu akstur utan vega í Vonarskarði síðari hluta ágústmánaðar.

Ágúst Ingi Jónsson

aij@mbl.is

Vatnajökulsþjóðgarður hefur tilkynnt til lögreglu akstur utan vega í Vonarskarði síðari hluta ágústmánaðar. Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs, segir um meint lögbrot að ræða og þetta sé ljótt tilvik á viðkvæmu landi, en almennt megi segja að á síðustu árum hafi dregið úr utanvegaakstri í þjóðgarðinum.

Á heimasíðu þjóðgarðsins segir að Vonarskarð sé hluti Vatnajökulsþjóðgarðs, fágæt náttúruperla milli Vatnajökuls og Tungnafellsjökuls, samkvæmt stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins, og vettvangur göngufólks.

Vörðuðu leiðina

„Bílarnir sem um ræðir hafa ekið að hluta til eftir gömlu slóðinni sem lá í gegnum skarðið, en einnig ekið eftir göngustígum og farið eftir mjúkum melum, undir Gjóstuklifi, í suðaustur í átt að Rauðá, þar til þeir fóru að sökkva í. Þeir hafa svo reynt á nokkrum stöðum að fara upp bratta brekku með tilheyrandi ummerkjum,“ segir á heimasíðunni. Viðkomandi merktu síðan leiðina greinilega með a.m.k. 24 vörðum.

Magnús segir svæðið mjög viðkvæmt, enda í 950-1100 metra hæð yfir sjávarmáli. Gróður sé viðkvæmur og rof eftir akstur jeppa séu lengi að gróa og jafna sig. Á síðustu árum hafi þó dregið úr utanvegaakstri í þjóðgarðinum. Magnús þakkar það einkum mikilli umræðu og fræðslu og aukinni umhverfisvitund í samfélaginu. Landverðir á vettvangi upplýsi fólk og kenni hvernig eigi að hegða sér á þessum svæðum og samstarf um fræðslu og stikun leiða við hópa eins og við Ferðaklúbbinn 4x4 og fleiri hafi verið ánægjulegt. Hugsanlega eigi fækkun ferðamanna einhvern þátt í að dregið hafi úr utanvegaakstri, en þeir hafi þó ekki verið í miklum mæli á ferð á stórum tækjum á hálendinu.

Afskekkt og torfært

„Vonarskarð og Tungnaáröræfi eru með afskekktustu og torfærustu svæðum Íslands og fáir sem leggja þangað leið sína, segir á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs. „Í Vonarskarði er háhitasvæði í um 950-1100 metra hæð yfir sjávarmáli með óvenjulega fjölbreyttum gróðri, litskrúðugu hverasvæði og sjaldgæfum háhitalífverum með hátt verndargildi. Þar finnst einnig ein hæsta mýri landsins í yfir 900 m hæð yfir sjó. Landslag er óvenjulegt, stórbrotið og fjölbreytt; jöklar og há fjöll, sandsléttur og áraurar, jökulár, bergvatnsár og volgar lindir og litfagrir hverir.

Í Vonarskarði eru vatnaskil Skjálfandafljóts og Köldukvíslar sem rennur í Tungnaá. Um sendinn öskjubotninn renna lækir að því er virðist hlið við hlið sem síðar eiga eftir að falla til sjávar ýmist á Suður- eða Norðurlandi. Einstök náttúra Vonarskarðs, víðerni og kyrrð lætur engan ósnortinn.“ aij@mbl.is