Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir stórliði Þýskalands í J-riðli undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli á morgun. Íslenska liðið er með fjögur stig í fimmta og næstneðsta sæti riðilsins en Þjóðverjar eru í efsta sætinu með 12 stig.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir stórliði Þýskalands í J-riðli undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli á morgun. Íslenska liðið er með fjögur stig í fimmta og næstneðsta sæti riðilsins en Þjóðverjar eru í efsta sætinu með 12 stig. Þjóðverjar hafa á að skipa gríðarlega sterkum leikmannahópi og í hópnum sem mætir á Laugardalsvöll eru átta leikmenn sem leika með Þýskalandsmeisturum Bayern München. Þá eru þrír leikmenn í hópnum sem leika með Evrópumeisturum Chelsea. 27