Samstarf Skarphéðinn Guðmundsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir í tónlistarhúsinu Hörpu.
Samstarf Skarphéðinn Guðmundsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir í tónlistarhúsinu Hörpu.
Sinfóníuhljómsveit Íslands verður reglulegur gestur á sjónvarpsskjáum landsmanna í vetur, en hljómsveitin hefur gert samkomulag við RÚV um aukið samstarf um beinar sjónvarpsútsendingar frá tónleikum hljómsveitarinnar.

Sinfóníuhljómsveit Íslands verður reglulegur gestur á sjónvarpsskjáum landsmanna í vetur, en hljómsveitin hefur gert samkomulag við RÚV um aukið samstarf um beinar sjónvarpsútsendingar frá tónleikum hljómsveitarinnar. Í samkomulaginu felst að RÚV mun senda beint út frá fernum Sinfóníutónleikum í vetur; í október, nóvember, mars og maí, auk tónleikanna Klassíkin okkar sem sýndir voru sl. föstudag.

„Beinu útsendingarnar verða á miðvikudagskvöldum kl. 20 og eru tónleikarnir um klukkustundarlangir í heild. Með þessu framtaki vill hljómsveitin auka fjölbreytni í tónleikahaldi sínu og gefa landsmönnum öllum kost á því að njóta tónleika hljómsveitarinnar. Að sjálfsögðu verður einnig útvarpað beint tónleikunum á Rás 1 eins og öðrum tónleikum hljómsveitarinnar,“ segir í tilkynningu.

Samkvæmt upplýsingum frá hljómsveitinni verða einleikarar og einsöngvarar á tónleikunum Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, Stefán Jón Bernharðsson hornleikari, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari og Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari, en stjórnendur eru Daníel Bjarnason og Eva Ollikainen. Kynnir á tónleikunum verður Halla Oddný Magnúsdóttir.

„Heimsfaraldurinn hefur kennt okkur að hugsa út fyrir okkar hefðbundna ramma og sýnt og sannað hversu mikilvæg tónlistin er okkur öllum. Tónleikaröðin er því frábær viðbót í okkar fjölbreyttu tónleikaflóru; aðgengilegir, fjölskylduvænir og framsæknir,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

„Blessunarlega hefur eitthvað jákvætt komið út úr þessu sérkennilega Covid-ástandi og eitt af því fáa er hið aukna og nánara samstarf RÚV og Sinfóníunnar,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV.