Fredin og Minnie. S-Allir Norður &spade;98 &heart;964 ⋄Á972 &klubs;ÁG42 Vestur Austur &spade;D1075 &spade;KG6432 &heart;KD1073 &heart;2 ⋄D86 ⋄K105 &klubs;6 &klubs;875 Suður &spade;Á &heart;ÁG85 ⋄G43 &klubs;KD1093 Suður spilar 3G.

Fredin og Minnie. S-Allir

Norður
98
964
Á972
ÁG42

Vestur Austur
D1075 KG6432
KD1073 2
D86 K105
6 875

Suður
Á
ÁG85
G43
KD1093

Suður spilar 3G.

Suður opnar á sterku grandi og norður hækkar í þrjú. Hjartakóngur út. Hvar er úrslitaslagurinn?

Sænski „sálfræðingurinn“ Peter Fredin væri vís til að opna á grandi með ásinn blankan í spaða. Hann væri líka vís til að láta hjartagosann undir kónginn í fyrsta slag og lokka vestur þannig áfram í litnum! Fúl af slíku tagi eru hans ær og kýr.

En sannleikurinn er sá, að Fredin var alls ekki í suður. Þar sat sjóndöpur eldri kona að nafni Minnie Bottom, ein af sögupersónum Franks Stewarts í daglegum þáttum hans á netinu. Og öfugt við Fredin er Minnie laus við alla tvöfeldni. En hún sér stundum tvöfalt og á það til að ruglast á kóng og gosa. Þess vegna „drap“ hún hjartagosa vesturs með kóng í fyrsta slag.

Vestur spilaði næst hjartatíu, Minnie hagræddi gleraugunum, tók með ás og fríaði slag á hjartaáttuna.