Amy Lee hélt að náttúrugöngur væru fyrir sig.
Amy Lee hélt að náttúrugöngur væru fyrir sig. — AFP
Ólán Amy Lee, söngkona rokkbandsins Evanescence, varð fyrir því óláni á dögunum að snúa sig illa á ökkla meðan hún var á heilsubótargöngu úti í náttúrunni nærri heimili sínu í Nashville. Í samtali við bandarísku útvarpsstöðina 102.
Ólán Amy Lee, söngkona rokkbandsins Evanescence, varð fyrir því óláni á dögunum að snúa sig illa á ökkla meðan hún var á heilsubótargöngu úti í náttúrunni nærri heimili sínu í Nashville. Í samtali við bandarísku útvarpsstöðina 102.9 The Buzz sagðist Lee hata ræktina eins og pestina og því hefði hún verið himinlifandi þegar hún uppgötvaði göngur í skóglendi og hlíðum enda mikilvægt fyrir rokkara að halda sér í formi. Ekki vildi þó betur til en svo að hún hrasaði með fyrrgreindum afleiðingum. Lee hefur tæpa tvo mánuði til að jafna sig en Evanescence leggur upp í túr með Halestorm 5. nóvember.