Jón Sigurðsson er látinn, 75 ára að aldri. Hann gegndi starfi seðlabankastjóra, var formaður Framsóknarflokksins og einnig iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Jón Sigurðsson er látinn, 75 ára að aldri. Hann gegndi starfi seðlabankastjóra, var formaður Framsóknarflokksins og einnig iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Jón greindist með langt gengið krabbamein í blöðruhálskirtli og ræddi um það í kvikmyndinni Karlamein sem sýnd var í mars á síðasta ári.

Jón var fæddur í Kollafirði á Kjalarnesi 23. ágúst árið 1946. Foreldrar hans voru Sigurður Ellert Ólason, hæstaréttarlögmaður og ríkislögmaður, og Unnur Kolbeinsdóttir, kennari og bókavörður.

Hann stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík og lauk þar stúdentsprófi árið 1966. Þaðan lá leið hans í íslensku og sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann útskrifaðist með BA-gráðu í þeim fögum þremur árum síðar.

Jón tók við starfi ritstjóra Tímans árið 1978 og sinnti því til 1981. Að því loknu varð hann skólastjóri Samvinnuskólans á Bifröst og síðar varð hann rektor skólans til ársins 1991.

Árið 1988 útskrifaðist Jón með meistaragráðu í menntunarfræðum og kennslustjórnun frá Columbia Pacific University í San Rafael í Bandaríkjunum. Hann útskrifaðist með doktorsgráðu í sömu greinum tveimur árum síðar. Árið 1993 útskrifaðist hann svo úr MBA-námi í rekstrarhagfræði og stjórnun frá National University í San Diego í Bandaríkjunum.

Frá árinu 2003 til ársins 2006 var Jón seðlabankastjóri. Að því loknu tók hann við embætti iðnaðar- og viðskiptaráðherra til ársins 2007. Þá var hann einnig formaður Framsóknarflokksins. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Sigrún Jóhannesdóttir. Þau áttu saman tvo syni, en fyrir átti Sigrún eina dóttur.