Kimberly Wybenga er mikill hrósari en hana langaði til þess að gleðja fólkið í kringum sig á meðan alheimsfaraldurinn stóð sem hæst.

Kimberly Wybenga er mikill hrósari en hana langaði til þess að gleðja fólkið í kringum sig á meðan alheimsfaraldurinn stóð sem hæst. Hún bjó því til svokallaðar hrós-krukkur fyrir tíu vini sína þar sem hún skrifaði alls konar hrós sem áttu við hvern og einn. Kimberly upplifði mikla gleði við það eitt að skrifa hrósin og ákvað því að halda áfram að dreifa ást og gleði með fleiri hrósum. Hingað til hefur hún gefið um 50 hrós-krukkur og handskrifað 1.750 hrós.

Ljósi punkturinn er á K100 og K100.is.