Lalli og Eddi. A-NS
Norður | |
♠10975 | |
♥K4 | |
♦ÁG1094 | |
♣K4 |
Vestur | Austur |
♠K64 | ♠3 |
♥532 | ♥DG986 |
♦753 | ♦K82 |
♣G652 | ♣ÁD87 |
Suður | |
♠ÁDG82 | |
♥Á107 | |
♦D6 | |
♣1093 |
Suður spilar 4♠.
Af sögnum er það eitt markvert að frétta að austur opnaði á 1♥ sem gjafari. Síðan tóku NS við keflinu og rúlluðu upp í 4♠. Hjartatvistur út.
Spilið kom upp í sveitakeppni í Frank Stewart's Club fyrir skömmu. Annar sagnhafinn (Lalli lánlausi) tók á hjartakóng í borði og svínaði í trompi. Vestur drap og skipti yfir í lauf. Þar átti austur tvo slagi á ♣ÁD og fjórði varnarslagurinn kom síðar á tígulkóng. Einn niður.
Hinn sagnhafinn (Eddi expert) tók á hjartaás heima og spilaði litlum spaða að blindum! Vestur dúkkaði (og hver hefði ekki gert það, spyr Stewart) og tían í borði átti slaginn. Eddi tók næst á spaðaás og svínaði í tígli. Við þessu átti vörnin ekkert svar. Austur spilaði hjarta, en Eddi náði að henda niður tveimur laufum í tígul áður en vestur komst að til að trompa.