Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur opinberað gögn sem rannsaka tengsl ríkisborgara frá Sádi-Arabíu sem bjuggu í Bandaríkjunum og tveggja hryðjuverkamannanna sem tóku þátt í árásunum 11. september árið 2001.
Gögnin eru þau fyrstu af nokkrum sem Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur sagst ætla að opinbera í kjölfar þess að 20 ár eru liðin frá árásunum.
Aðstandendur fórnarlambanna sem fórust í árásunum hafa lengi kallað eftir að gögnin verði gerð opinber þar sem þeir telja að yfirvöld í Sádi-Arabíu hafi vitað af árásunum og hafi ekkert gert til þess að stöðva þær.
Gögnin veita aftur á móti engar vísbendingar um að ríkisstjórnin í Sádi-Arabíu hafi vitað af árásinni en 15 af 19 flugræningjum árásanna voru frá Sádi-Arabíu.
Áður en gögnin voru gefin út sagðist sendiráð Sádi-Arabíu í Washington-borg fagna því að gögnin yrðu gerð opinber. Þau ítreki að engin tengsl séu á milli ríkisins og flugræningjanna og lýsti sendiráðið þeim orðrómi sem „röngum og hatursfullum“.
Fengu aðstoð frá sádi-arabískum ríkisborgurum
Um er að ræða 16 blaðsíðna skjal þar sem enn er talsvert yfirstrikað. Það byggist á viðtölum við ónafngreindan heimildarmann þar sem hann lýsir samskiptum á milli ríkisborgara frá Sádi-Aarabíu og tveggja flugræningja, Nawaf al-Hazmi og Khalid al-Midhar.Flugræningjarnir tveir þóttust vera nemar er þeir komu til Bandaríkjanna árið 2000. Skjalið segir að þeir hafi fengið mikinn stuðning frá Omar al-Bayoumi en vitni segja að hann hafi verið tíður gestur á ræðismannsskrifstofu Sádi-Arabíu í Los Angeles-borg. Al-Bayoumi hafði þá landvistarleyfi sem nemi.
Heimildarmaðurinn segir að al-Bayoumi hafi verið „mjög hátt settur“ á ræðismannsskrifstofunni. Hann aðstoðaði al-Hazmi og al-Midhar meðal annars fjárhagslega og veitti þeim húsnæði.
Þá segir í skjalinu að flugræningjarnir hafi einnig haft góð tengsl við Fahad al-Thumairy sem var íhaldsamur ímam í mosku í Los Angeles.
Al-Thumairy og al-Bayoumi fóru frá Bandaríkjunum nokkrum vikum fyrir árásirnar 11. september árið 2001.