Slys Vélinni hlekktist á á flugbrautinni og brotnaði í tvennt eftir lendinguna.
Slys Vélinni hlekktist á á flugbrautinni og brotnaði í tvennt eftir lendinguna. — AFP
Mistök flugmanns og brot á öryggisreglum leiddu líklegast til flugslyss á Indlandi í ágúst á síðasta ári.

Mistök flugmanns og brot á öryggisreglum leiddu líklegast til flugslyss á Indlandi í ágúst á síðasta ári. 190 voru um borð í vél Air India Express þegar hún hrapaði á Calicut-flugvellinum í Kerala-héraði með þeim afleiðingum að 21 lést og 75 slösuðust alvarlega. Báðir flugmenn vélarinnar létust.

Vélinni hlekktist á á flugbrautinni og brotnaði í tvennt eftir lendinguna. Flugmennirnir höfðu áður reynt að lenda vélinni en ákveðið að hætta við lendinguna vegna veðurs.

Samkvæmt nýútgefinni skýrslu indverskrar rannsóknarnefndar vegna flugslysa brutu flugmennirnir þónokkrar öryggisreglur í aðdraganda lendingarinnar. Samkvæmt skýrslunni hafði biluð rúðuþurrka einnig áhrif á slysið, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.