Dagmál
Andrés Magnússon
Stefán Einar Stefánsson
„Flokkurinn var stofnaður fyrir síðustu þingkosningar, en við ákváðum að fara ekki fram þá, heldur að snúa okkur að endurreisn verkalýðshreyfingarinnar. Af því að við erum sósíalistaflokkur þá teljum við það ekkert síður og jafnvel mikilvægari vettvang heldur en hinn borgaralega lýðræðisvettvang eins og sveitarstjórnir og þing.“
En nú tók fylgið undir sig stökk.
Þessum orðum fer Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, um stöðu flokksins nú þegar nokkrir dagar eru liðnir af kosningabaráttunni. Hann er gestur í hressilegu samtali á vettvangi Dagmála.
Ríkisstjórnin mun falla
Kannanir benda til mjög dreifðs fylgis og stjórnarmeirihlutinn virðist ætla að halda áfram fái hann umboð til þess...„Nei, hann fellur. Alveg sannfærður um það. Þessi ríkisstjórn hefur ekki innistæðu til þess að halda áfram.“
Nú varstu sjálfur hallur undir frjálshyggju á árum áður, stór-kapítalisti árin fyrir hrun, gekkst næst í múslimafélagið, vildir ganga Noregskonungi á hönd og nú Sósíalistaflokkinn. Finnst þér skrýtið þó sumir spyrji hvort þér sé alvara eða hvort þetta sé bara langdreginn gerningur?
Starfsmaður en ekki kapítalisti
Áttirðu ekki valrétt á því?„Það er ekki að vera kapítalisti, það er að vera starfsmaður.“
En er þér alvara?
Eru þetta þá bara klókindi?
En þú hafnar því að hafa verið kapítalisti þegar þú varst að vinna með mönnum sem höfðu tugmilljarða umsvif, þú varst að kaupa stórfyrirtæki hér heima og erlendis, ferðaðist í einkaþotum, á forstjóralaunum og forstjórajeppum. Snýrð svo við blaðinu og talar um að það þurfi að brjóta niður stórfyrirtæki vegna þess að fólk hafi það ekki nógu gott í samfélaginu.
Þú varst þá aldrei kapítalisti, þú bara notfærðir þér kapítalista?
En hérna rétt áðan sagðir þú að stórfyrirtæki mættu ekki gína yfir samfélaginu, nema þegar þú ert þar – er það trúverðugt?
Tjáningarfrelsi en ekki kapítal
En fjölmiðlasumarið 2004 skrifaðir þú fjölda leiðara um að ekkert mætti trufla eignarhald stórfyrirtækja á fjölmiðlum...„Það snerist um tjáningarfrelsið.“
Nei, það snerist um eignarhaldið.
Þú talar um Kolkrabbann eins og hann sé í fullu fjöri, notar orð eins auðhringi, stéttarbaráttu, samvinnuhreyfinguna og svo framvegis. Viltu færa samfélagið aftur til 1971, skrúfa litinn niður í sjónvarpinu eða hvert er þetta að fara?
Eru ekki að lýsa einhverri útópíu sem aldrei var?
Lygari verði látinn þrífa klósett
En nú ert þú að gefa kost á þér til Alþingis og það er ekki óeðlilegt að fólk spyrji um ábyrgð þína þegar þú tekur stórt upp í þig. Þú leggur til að sjálfstæðishúsinu Valhöll verði breytt í almenningssalerni og að tiltekinn maður eigi að skúra þar...„Maður sem hefur borið út alls konar lygar um mig.“
Og þú hefur líka haft í heitingum við Hæstarétt ef hann fer ekki eftir ykkar kröfum.
Sagðirðu ekki að það ætti að ryðja Hæstarétt ef hann dæmdi öðruvísi en ykkur þætti réttast?
Við gerðum könnun um daginn sem sýndi að 66% töldu að spilling væri vandamál í íslenskum stjórnmálum. Þjóðfélög sem lenda í að gömul valdaklíka hefur dreift sér út um allt samfélagið, er í stjórnsýslunni, í dómskerfinu og út um allt...“
Ertu að segja að stjórnsýslan á Íslandi og dómskerfið sé valdaklíka?
Lausn í nýjum lýðveldum
Það er mjög alvarlegt mál ef maður sem er að fá fljúgandi fylgi í könnunum og koma mörgum þingmönnum inn, sé með það að stefnu að ryðja Hæstarétt og að því er virðist stjórnkerfið, af því að sá hópur er skilgreindur sem valdaklíka. Þetta eru rosaleg orð.„Það hefur gerst í sögunni, þar sem fólk hefur misst samfélag sitt í svona, að þá hefur verið gripið til þess ráðs að búa eitthvað til eins og 2. lýðveldið. Við erum gerspillt samfélag.“
Telurðu að dómsvaldið sé spillt?
Og ef það er þannig, að Hæstiréttur stoppar það að almenningur fái að nota sínar auðlindir, þá verðum við að bregðast við því. Ég er að benda á að aðrar þjóðir hafi brugðist við því að stofna nýtt lýðveldi.“
Bíddu við, þú segir að það sé skipulegt samsæri hvernig Hæstiréttur hafi verið skipaður til þess verja eitt tiltekið mál.
Bakherbergi einhvers staðar
„Auðvitað, það vita það allir.“
Hver stýrir þessu samsæri?
Enga dellu hér, hver stýrir slíku samsæri?
Þú hefur þá einhverja innsýn sem við höfum ekki.
Ertu að segja að flokkur með 25% fylgi hafi hér öll völd? Og að hin 75% geti ekki rönd við reist?
Af hverju, er það glundroðinn á vinstri kantinum?