Þröstur Guðbjartsson fæddist 23. október 1952. Hann lést 17. júlí 2021.

Útförin fór fram 26. júlí 2021.

Kæri vinur! Að leiðarlokum sendi ég þér bestu þakkir fyrir okkar góðu stundir. Öll þau góðu samtöl er við áttum á liðnum vetri mun ég geyma mér í huga allar stundir. Ég mun kveðja þig með ljóðlínum eftir Herdísi Andrésdóttur frá Flatey á Breiðafirði.

Og seinna, þar sem enginn telur ár

og aldrei falla nokkur harmatár,

mun herra tímans, hjartans faðir vor,

úr hausti tímans gera eilíft vor.

(H.A.)

Farðu í friði, friður Guðs þig blessi.

Jón Kr. Ólafsson söngvari,

Reynimel, 465 Bíldudal