Kristján Páll Kristjánsson (Krissi) fæddist í Reykjavík 4. nóvember 1979. Hann lést eftir snarpa viðureign við krabbamein á Hospice Sydvestjylland í Esbjerg í Danmörku 6. september 2021.

Foreldrar Kristjáns Páls eru Kristján Jón Jónsson, f. 15. júlí 1948, og Steinunn Jóhanna Pálsdóttir, f. 3. maí 1950. Systkini Kristjáns eru Aðalheiður, f. 1969, Laufey, f. 1973 og Jóhannes Steinar, f. 1984.

Eftirlifandi eiginkona Krissa er Hanna Jóna Ragnarsdóttir, f. 28. mars 1980, dætur þeirra eru Petrúnella Aðalheiður, f. 11. október 1998, kærasti hennar er Viktor Andri Reynisson, f. 1999, og Katrín Diljá, f. 29. apríl 2006.

Fyrsta æviárið bjó Krissi með fjölskyldu sinni í Vík í Mýrdal en annars ólst hann að mestu upp í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem hann kláraði sína grunnskólagöngu frá Hagaskóla. Síðan lá leið hans í MR einn vetur en þaðan færði hann sig yfir í Iðnskólann þar sem hann lærði rafeindavirkjun.

Krissi fékk ungur áhuga á gítar. Hann tók þátt í Músíktilraunum í grunnskóla þar sem hljómsveit hans lenti í þriðja sæti og hann spilaði snilldarvel á gítar alla ævi. Hann fann sig vel í golfiðkun eftir þrítugt. Mest af öllu elskaði hann ævintýri, Star Trek, Star Wars, Hringadróttinssögu, Hobbitann, Dungeons and Dragons, og var alla tíð mikill áhugamaður um tölvuleiki. Hann var lengstan hluta starfsævinnar innan tölvugeirans að vinna fyrir ýmis tölvuleikjafyrirtæki. Það mikilvægasta í lífi hans var þó fjölskyldan og var föðurhlutverkið honum afar kært.

Krissi bætti jafnt og þétt við sig menntun í ýmsum skólum og skaraði fram úr í hverju sem hann tók sér fyrir hendur. Stærðfræði og skyldar greinar voru hans yndi og hann stefndi á að hefja nám í eðlisfræði með vinnu haustið 2021 áður en krabbameinið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.

Árið 2018 fluttist Krissi ásamt konu, dætrum og gæludýrum til Danmerkur og hóf störf hjá LEGO group sem Lead IT Engineer. Hann var gríðarlega ánægður í starfi þar. Hann naut mjög síðustu mánaðanna þrátt fyrir erfiðar lyfjagjafir. Hann gat sökkt sér í Star Wars-bækur og myndefni, keypti og spilaði á draumagítarinn sinn, spilaði World of Warcraft af hjartans lyst og var með konu og dætrum, sem var það sem hann elskaði mest.

Útför Kristjáns Páls fer fram þann 13. september í Billund í Danmörku að viðstöddum nánustu fjölskyldu og vinnufélögum. Minningarathöfn mun fara fram á Íslandi og verður tímasetning hennar auglýst nánar síðar.

Kristján Páll gekk í Vesturbæjarskólann og síðan í Hagaskóla. Hann byrjaði í MR en lauk ekki námi þar því áhuginn var við tölvur sem kom fljótt í ljós eftir að pabbi hans kom með tölvu heim þegar hann var um 11 ára gamall og þá varð ekki aftur snúið. Hann var eiginlega einn af þeim fyrstu sem grúfðu sig ofan í tölvur og forrit seinna meir bæði heima við og í starfi. Hann varð einskonar tölvunörd ef svo má segja. Hann stundaði nám í tölvunarfræðum hjá Tölvuskóla Suðurnesja, leigði sér íbúð í Keflavík og fékk vinnu í tölvudeild Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Kynntist hann þar góðu fólki sem urðu góðir vinir hans og hélt hann sambandi við sína gömlu vini til hinsta dags. Kristján Páll var líka „System Architect“ í tölvudeild CCP 2012-2014 og „Cloud Systems Architect“ hjá WuXi Nextcode 2015-2019 eða allt þar til fjölskyldan flutti til Danmerkur. Hann var kannski ekki vinmargur en traustur vinur þeirra sem hann kynntist vel. Alltaf var hann til í að hlusta og gefa ráð. Kristján Páll okkar var bráðvel gefinn, rólyndur og gat verið snöggur t.d. við að sjá út með tölur og mengi og finna lausnir og útkomur. Ekkert vafðist fyrir honum í ráðum til fólks hvort sem um ræddi tölvumál, viðgerðir eða rafmagn. Hann var fljótur að átta sig og mjög naskur að sjá út hvað var málið ef einhvers þurfti við. Það var stutt í góðvildina og hlýjuna og fallega milda brosið ef svo bar undir. Hann var mjög næmur og tilfinningaríkur og lét sér annt um allt sitt fólk, vini sína og fjölskyldu. Hann var elskulegur við konu sína og dætur og vildi allt fyrir þær gera. Hann hefði getað vaðið eld og brennistein fyrir þær allar ef með þyrfti. Hann var heilshugar þegar eitthvað bjátaði á hjá öðrum, alveg sama hver átti í hlut. Hann átti stundum erfitt og hugur þungur en hann bar það ekki á torg og bar þess vegna harm sinn í hljóði eins og stundum er sagt.

Kristjáni Páli var margt til lista lagt eins og að leika á gítar. Hann fikraði sig áfram af fingrum fram á gítarinn sem pabbi hans gaf honum 11 ára gömlum og síðar fór hann í gítarnám og varð góður gítaristi. Hann hafði ekkert fyrir því að hlusta á lög og finna nóturnar sem við áttu og leika svo hnökralaust. Hann hafði svo gott tóneyra til að geta spilað á gítarinn sinn. Reyndar hafði hann farið í Tónlistarskóla Reykjavíkur 9 ára gamall og lært þar á altflautu og nótnalestur.

Oft var líf og fjör í fjölskylduhúsinu á Vesturgötunni. Kristján Páll og skólabræður hans mynduðu smá hljómsveit sem æfði í bílskúrnum og kjallarinn varð miðstöð tölvuleikjanna hjá félögunum, stundum langt fram á nótt og um helgar. Það var oft glatt á hjalla og hálfgerð ættarmót í matarveislum ættingja og fjölskylduvina Kristjáns Páls á Vesturgötu 37 þar sem fjölskyldan bjó. Fermingarveislan hans Kristjáns Páls var einmitt haldin heima.

En nú er stundin liðin og minningarnar einar eftir til að ylja sér við. Allt er svo öfugsnúið. Ungur maður í blóma lífsins, 41 árs, er frá okkur tekinn en eftir sitjum við foreldrar hans á áttræðisaldri og finnst hlutirnir í algjörlega öfugri röð í sorg okkar. Hann barðist hetjulega til hinstu stundar en varð að lúta í lægra haldi fyrir vágestinum mikla og er okkur og öðrum ættingjum hans mikill harmdauði. Blessuð sé minning elskulegs sonar og vinar sem nú er genginn. Sendum við kærleiks- og samúðarkveðjur til eftirlifandi eiginkonu og dætra.

Hin langa þraut er liðin,

nú loksins hlauztu friðinn,

og allt er orðið rótt,

nú sæll er sigur unninn

og sólin björt upp runnin

á bak við dimma dauðans nótt.

(V. Briem.)

Mamma og pabbi.

Gleðidagur mikill var 4. nóvember 1979 þegar þú komst í heiminn elskulegurinn minn. Algjört ljós í mínu lífi. Hefur alltaf átt hjarta mitt frá fyrstu mínútu. Ógleymanlegt þegar ég passaði þig og Lullu sætu sys þegar ég var 12 ára heilt sumar og þú aðeins tveggja ára, varst alltaf eins og hugur minn, þvílíkur ljúflingur, yndislegur, fallegur og góður. Við horfðum á bílana út um gluggann, það var það skemmtilegasta sem þú gerðir og við lékum okkur og svo eltirðu mig um alla íbúð, bara sætastur.

Sorgin er mikil í mínu hjarta nú, elsku hjartagullið mitt. Vildi að ég gæti sótt þig og haft þig hjá mér. Góðar stundir áttum við saman og einnig erfiðar. Snöppin okkar skemmtilegu, Rip-, Rap- og Rup-grúppan okkar, vá, það var yndislegt og allt skemmtilega spjallið okkar, mikið á ég eftir að sakna þess.

Þú varst sólargeislinn í mínu lífi en nú hefur verið dregið fyrir sólu. Vildi að ég gæti faðmað þig, knúsað og kysst, yndislegi bróðir minn. Við fengum yndislega stund saman þegar ég kom til þín til DK í júlí og mun ég halda fast í þá fallegu minningu okkar. Þú munt alltaf eiga stóran sess í mínu hjarta og mun ég alltaf halda minningunum um þig á lofti. Börnin mín dýrkuðu þig, flottasti, skemmtilegasti og fyndnasti frændinn, alltaf eins og þau hefðu hitt þig í gær. Ég kem til þín þegar minn tími kemur og við knúsumst, föðmumst og kyssumst. Ég lofa því elskulegurinn minn. Ég sakna þín óendanlega mikið, elsku fallegi bróðir minn, en þangað til næst: Sofðu vært og rótt, elsku bróðir.

Lovjú að eilífu.

Þín elskandi stóra sys,

Aðalheiður Mjöll

Petrúnelludóttir (Heiða).

Með brostið hjarta kveð ég þig elsku litli bróðir minn og vinur. Vegna þagnarinnar við öllum spurningum mínum hlýja ég mér við minningarnar okkar.

Fyrir utan að vera þyngsti bróðir, sem fimm ára stelpa hefur hugsanlega eignast, þá varstu gæddur mörgum heillandi persónueinkennum. Frá fyrstu tíð varstu hæglátur, dundari með sótsvartan húmor. Útlit þitt var fallegt, þú varðst fljótt hávaxinn og ljósa hárið, sem fékk stundum að vaxa, fór þér vel. Önnur framtönnin þín fór aðeins yfir hina sem gerði bros þitt og glott svo ómótstæðilega fallegt að það var ekki hægt annað en að brosa og vera í góðu skapi í kringum þig.

Tónlistin skipaði fljótt stóran sess í hjarta þínu. Gítarinn þinn og magnarinn voru aldrei langt undan og ég og páfagaukurinn Kobbi hlustuðum alltaf á þig með aðdáun. Þú varst mikið náttúrubarn og hafðir áhuga á öllu sem Mýrin hafði upp á að bjóða. Í minningunni kvartaðir þú aldrei, baðst aldrei um neitt og fannst sjálfur út úr hlutunum. Þú hlustaðir meira en þú talaðir.

Ég er og verð að eilífu þakklát fyrir að hafa fengið þig sem bróður. Við vorum náin og góð saman. Minningarnar okkar lifa. Útlit þitt lifir í börnunum okkar og ég mun aldrei gleyma þér.

Það er í raun og veru magnað að þú, þessi hægláti rólegi drengur, varðst ungur pabbi, þú fannst ástina þína fljótt og menntaðir þig í tölvuheiminum á skjótan og farsælan hátt. Fyrir það er ég þakklát. Það voru mikil gæði í þínu stutta lífi.

Þú varst frábær pabbi, barngæska þín átti sér engin takmörk. Þú varst einfaldlega bestur og stelpurnar þínar nutu svo aldeilis góðs af því. Á þínum fullorðinsárum lifðir þú fyrir þær. Þið voruð samheldin og ástrík fjölskylda sem umvöfðuð ykkur með dýrum, kósíheitum og góðum anda. Til ykkar var alltaf gott að koma. Á heimilinu fékkstu pláss til að vera þú sjálfur, dunda, spila á gítarinn, vinna heima í tölvunni, vera í kringum dýrin þín, dekra þau/þær og umvefja alla þá sem í kringum þig voru ást og umhyggju.

Það var erfitt að fylgjast með baráttu þinni við hinn ógnarsterka krabba sem fannst inni í þér fyrir sjö mánuðum. Óteljandi illkynja meinvörp sem voru svo sannarlega staðráðin í að drepa þig frá fyrstu mínútu.

Baráttan, trúin, viljinn og þráin eftir lengra lífi með stelpunum þínum þremur var svo áþreifanlega magnþrungin að við, þínir nánustu, stóðum utanvelta, ráðþrota og ráðalaus rétt eins og vélvana árabátar úti á ólgandi rúmsjó. Það var vont og ný tilfinning að fyllast þessu djúpa dökka vonleysi og þessum ömurlegheitum að geta ekki gert neitt fyrir ykkur. Þið sem voruð stödd í draumalífinu ykkar, í draumahúsinu, með draumagarðinn og þú í draumastarfinu.

Þú lifir áfram Krissi minn, í hjarta mínu og sál. Skarðið verður aldrei fyllt en ég mun reyna að fylla það með gulli góðra minninga.

Hvíldu í ró og friði elsku litli bróðir minn. Við sjáumst aftur einhvers staðar, einhvern tíma aftur.

Þín

Laufey (Lulla).

Elsku hjartans Krissi minn, maðurinn hennar Hönnu Jónu minnar og tengdasonur hennar systur minnar. Pabbinn þeirra Petu og Kötu.

Mér finnst svo ótrúlega stutt síðan ég heyrði af þér fyrst. Kærastinn hennar Hönnu Jónu minnar í heimsókn á Álfaskeiðinu, máttir sko ekki gista en fórst samt ekki heim fyrr en undir morgun. Þetta voru fyrstu sögurnar sem hún amma Droplaug sagði mér af ykkur kærustuparinu og mér fannst þetta hrikalega spennandi. Svo þegar við Jói og krakkarnir fluttum heim sumarið 1998 þá var fyrsta lífið sem þið skópuð komið vel af stað í mallakútnum hennar Hönnu Jónu þinnar og Peta fæddist í október þetta haust. Þið voruð búin að ná smá meiri þroska þegar hún Kata kom í heiminn árið 2006 en samt alltaf sömu skemmtilegu krakkarnir. Það sem hún Sissa systir mín var stolt af ykkur og montin af ömmustelpunum sínum. Þið Hanna Jóna hafið búið víða og gert margt svo ekki sé meira sagt. Þið hikuðuð aldrei við að skipta um umhverfi, hvort sem var innan höfuðborgarsvæðisins, út um landið okkar góða og svo núna síðustu árin hafið þið búið um ykkur í Danmörku þar sem þú starfaðir fyrir LEGO. Mér hefur þótt einstakt að fylgjast með ykkur fjölskyldunni í gegnum tíðina, svolítið á ská þar sem ég er „bara“ frænka en samt svo náið þar sem ég á svo mikið í henni Hönnu Jónu minni. Þið hafið lagt mikla alúð í dætur ykkar og þær bera þá alúð vel. Þú hefur gefið þeim gott veganesti sem þær munu grípa til á áframhaldandi leið sinni í gegnum lífið.

Núna rennur hugurinn svolítið sjálfkrafa til síðustu jóla sem við héldum saman á Reyrenginu hjá Sissu og Stebba. Við vissum þá að það væru síðustu jólin hennar Sissu tengdamóður þinnar, við vissum bara ekki að það væru líka síðustu jólin þín. Þessi jól voru einstaklega góð, falleg og innihaldsrík, mikið hlegið og talað og etinn góður matur sem þið hjónin sáuð um fyrir okkur hin. Einstök samvera sem við erum þakklát fyrir og skilur eftir margar góðar minningar, líkt og allar aðrar samverustundir okkar í gegnum lífið.

Nýárið var vart runnið í garð þegar þú færð svo þína greiningu og var það sannarlega mikið áfall fyrir okkur öll en ekki síst fyrir stelpurnar þínar þrjár, Hönnu, Petu og Kötu. Þú háðir hetjulega baráttu við þennan ófögnuð sem krabbinn getur verið. Þið fjölskyldan náðuð samt á einstakan hátt að gera þennan allt of stutta tíma innihaldsríkan og bjartan. Eftir því sem þú veiktist meir urðu stelpurnar þínar sterkari með hverri raun og saman fóruð þið af styrk allt á leiðarenda þar sem þú kvaddir umvafinn ást.

Ég og fjölskylda mín þökkum þér samfylgdina elsku Krissi minn. Elsku stelpurnar okkar, Hanna Jóna, Peta og Kata – við vottum ykkur okkar hjartans samúð.

Andrea, Jóhannes

og fjölskylda.