Stífla. N-Enginn
Norður | |
♠ÁD3 | |
♥ÁG532 | |
♦Á43 | |
♣Á9 |
Vestur | Austur |
♠105 | ♠98742 |
♥10964 | ♥KD |
♦K10 | ♦G2 |
♣D5432 | ♣KG106 |
Suður | |
♠KG6 | |
♥87 | |
♦D98765 | |
♣87 |
Suður spilar 3G.
Vel kemur til greina að opna norðurhöndina á 2G og það gerðu einstaka menn í septembermóti Netbridge. Meirihlutinn vakti þó á 1♥ og þar með dæmdust gröndin þrjú á suður eftir skyldusvar á kröfugrandi. Lítið lauf út. Skiptir máli hvort sagnhafi lætur ásinn eða níuna úr blindum í fyrsta slag?
Nei, ekki á opnu borði. En það verður þyngra fyrir vörnina að innleysa laufslagina ef sagnhafi dúkkar. Það gerði Norðmaðurinn Terje Aa á móti Svíunum Gunnari Hallberg og Simoni Hult. Simon tók á kóng og spilaði laufgosa um hæl. Umdeilanlegt spil, en skiljanlegt. Reglan er að spila „þriðja hæsta til baka frá ríkjandi lengd“ og því er rétta spil austurs strangt tekið sexan. En þá er hætta á stíflu ef sagnhafi hefur byrjað með ♣Dx.
Alla vega: Terje fríaði tígulinn og Gunnar lagði niður laufdrottningu í þeirri von og trú að makker hefði byrjað með ♣KGx. Unnið spil.