Það getur verið stressandi að sækja um nýja vinnu og oft þarf að treysta á góð meðmæli frá fyrri vinnuveitendum.

Það getur verið stressandi að sækja um nýja vinnu og oft þarf að treysta á góð meðmæli frá fyrri vinnuveitendum. Kona að nafni Jessica Sanchez datt hins vegar í meðmælalukkupottinn þegar hún ákvað að gefa upp handahófskennd númer hjá einhverjum ókunnugum í starfsumsókn. Númerið sem hún gaf upp sem númer meðmælanda var hjá manni að nafni Perseph en sá hafði ekki hugmynd um hver Jessica Sanchez var enda aldrei á ævi sinni hitt hana. Hann ákvað þó að leika með og gaf Jessicu sín allra bestu meðmæli því hann var í stuði til að dreifa gleði.

Sjáðu ljósa punktinn á K100.is.