N'Golo Kanté, franskur miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Chelsea, hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Kanté er þegar kominn í einangrun á heimili sínu og mun dvelja þar í tíu daga.
N'Golo Kanté, franskur miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Chelsea, hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Kanté er þegar kominn í einangrun á heimili sínu og mun dvelja þar í tíu daga.
Af þessum sökum mun Kanté missa af næstu leikjum Chelsea, þar á meðal gegn Juventus í Meistaradeild Evrópu í kvöld og gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi, auk þess sem hann verður vísast ekki tiltækur fyrir næsta landsliðsverkefni Frakklands í byrjun október.