Unnur Birna Björnsdóttir
Unnur Birna Björnsdóttir
Fyrstu tónleikar haustdagskrár Jazzklúbbsins Múlans fara fram í Flóa í Hörpu í kvöld kl. 20. Á þeim kemur fram Unnur Birna & Björn Thoroddsen Band.
Fyrstu tónleikar haustdagskrár Jazzklúbbsins Múlans fara fram í Flóa í Hörpu í kvöld kl. 20. Á þeim kemur fram Unnur Birna & Björn Thoroddsen Band. Verða hinir ýmsu tónlistarstílar leiknir af alúð, eins og því er lýst í tilkynningu, og í því sambandi nefnd samsuða af djassi, django, blús, rokki og poppi. Með Unni Birnu og Birni leika Skúli Gíslason á trommur og Sigurgeir Skafti á bassa. Haustdagskrá Jazzklúbbsins Múlans heldur áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan desember og er klúbburinn nú á sínu 24. starfsári.