Elsku Vogin mín, það er ekki langt síðan þú gladdist yfir merkilegum atburði í lífi þínu og allt virtist leika í lyndi. En þú átt það til að vera fljót að gleyma þeirri gæfu sem umlykur þig.

Elsku Vogin mín, það er ekki langt síðan þú gladdist yfir merkilegum atburði í lífi þínu og allt virtist leika í lyndi. En þú átt það til að vera fljót að gleyma þeirri gæfu sem umlykur þig. Þú hefur tilhneigingu til að setja undir þig hausinn og búa til alls kyns vitleysu í huganum sem þú kvíðir fyrir. Þegar þú ert með huga og haus í framtíðinni, þá sérðu ekki sólina, því framtíðin skapast með gleðinni sem þú geislar af núna.

Vertu fullkomlega róleg og hafðu þá trú að lífið leysi þetta allt saman, það er nákvæmlega það sem gerist og þú finnur síðasta púslið í púsluspilinu. Þegar þú ert pirruð út í sjálfa þig er ekki nokkur leið að vera í kringum þig. Og það er afskaplega skrýtið, þar sem þú ert svo heppin að vera þú og vildir í raun og veru ekki vera nein önnur. Að þú getir klappað þér á bakið og sagt við þig upphefjandi orð. Þegar þú breytir því hvernig þú talar við sjálfa þig breytist allt.

Þú getur skilið við fósturlandið, vinnuna, fjölskylduna, en þú situr uppi með þessa sérstöku manneskju sem þú valdir að vera áður en þú komst inn í þetta líf. Þú ert rosalega há ljósvera sem á erfitt stundum með það að vera bara manneskja.

Ekki fara út í neina sérstaka áhættu í sambandi við fjármál, hugsaðu þar eins og hagsýn húsmóðir og settu peninga til hliðar ef þú getur. Þú ert að fara að rækta sjálfa þig meira, bæði líkama og anda. Og þegar þú sérð að árangur næst á stuttum tíma og þú geislar eins og engill, þá fer ástin í þann farveg sem þú vilt. Gefðu með gleði, þá verður allt að gulli sem þú snertir.