Við sendum Faulkner batakveðjur.
Við sendum Faulkner batakveðjur. — AFP
Veikindi Málmgoðin í Judas Priest hafa neyðst til að aflýsa Bandaríkjatúr sínum eftir að gítarleikarinn Richie Faulkner var lagður inn á spítala í vikunni vegna alvarlegs hjartakvilla.
Veikindi Málmgoðin í Judas Priest hafa neyðst til að aflýsa Bandaríkjatúr sínum eftir að gítarleikarinn Richie Faulkner var lagður inn á spítala í vikunni vegna alvarlegs hjartakvilla. Faulkner er aðeins 41 árs, langyngstur hins geistlega bands en þrír meðlima eru komnir á áttræðisaldurinn. Útilokað er talið að KK Downing, fyrrverandi gítaristi Priest, verði fenginn til að leysa Faulkner af hólmi enda hefur hann staðið í hnútukasti við sína gömlu félaga seinustu árin.