Maragret Qualley leikur aðalhlutverkið.
Maragret Qualley leikur aðalhlutverkið. — AFP
Sjónvarp Maid kallast nýir dramaþættir sem komu inn á efnisveituna Netflix fyrir helgina en þeir byggjast á hinum vinsælu endurminningum Stephanie Land Maid: Hard Work, Low Pay, and a Mother's Will to Survive.
Sjónvarp Maid kallast nýir dramaþættir sem komu inn á efnisveituna Netflix fyrir helgina en þeir byggjast á hinum vinsælu endurminningum Stephanie Land Maid: Hard Work, Low Pay, and a Mother's Will to Survive. Um er að ræða sama framleiðsluteymi og stóð á bak við hina vinsælu þætti Shameless og líkt og þar berum við niður í lægsta þrepi þjóðfélagsstigans. Margaret Qualley fer með hlutverk Alex, ungrar konu sem flýr úr ofbeldisfullu sambandi vegna ungrar dóttur sinnar en kemur alls staðar að luktum dyrum. Sumsé ameríski draumurinn með öfugum formerkjum; slæmt húsnæði, illa launað starf og bældar vonir. Af öðrum leikendum í Maid má nefna móður Qualley, Andie MacDowell, Nick Robinson og Aniku Noni Rose.