Corey Taylor hefur það fínt í dag.
Corey Taylor hefur það fínt í dag.
Veikindi Corey Taylor, söngvari málmbandsins Slipknot, kveðst ekki í annan tíma hafa orðið eins veikur og þegar hann greindist með kórónuveirusjúkdóminn í sumar.
Veikindi Corey Taylor, söngvari málmbandsins Slipknot, kveðst ekki í annan tíma hafa orðið eins veikur og þegar hann greindist með kórónuveirusjúkdóminn í sumar. Í samtali við útvarpsþáttinn SiriusXM vestur í Bandaríkjunum viðurkenndi hann að hafa steinlegið í tvo daga en strax á þriðja degi hafi hann verið orðinn miklu skárri. Á fjórða degi var hann reiðubúinn að mæta í ræktina en hélt að sjálfsögðu í sér enda í einangrun. Taylor er fullbólusettur og þakkar það öðru fremur þennan skjóta viðsnúning. „Hlustið ekki á [Nicki] Minajur þessa heims. Bóluefnið virkar. Það virkaði fyrir mig og mun virka fyrir þig.“