Eflaust tengja sumir við að hafa ekki gaman af því að þrífa og reyna jafnvel að fresta því eins lengi og þeir geta. Tiktokstjarnan Mitchell V.G.

Eflaust tengja sumir við að hafa ekki gaman af því að þrífa og reyna jafnvel að fresta því eins lengi og þeir geta. Tiktokstjarnan Mitchell V.G. virðist blessunarlega ekki tengja við það en hann finnur gleðina í því að þrífa með því að spila skemmtilega tónlist og taka nauðsynlegar danspásur. Við myndböndin sín skrifar hann gjarnan „bara góðir straumar“ og heldur uppi góðri stemningu á meðan hann þrífur allt hátt og lágt. Einnig á hann það til að syngja hátt og snjallt með lögunum og tekur fyrir mismunandi tónlistarstefnur í ólíkum myndböndum.

Sjáðu myndbandið á K100.is.