Alþingi Undirbúningsnefndin ætlar að reyna að vinna málið hratt.
Alþingi Undirbúningsnefndin ætlar að reyna að vinna málið hratt. — Morgunblaðið/Hari
Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa kemur saman í dag á opnum fundi klukkan 10.30. Birgir Ármannsson formaður nefndarinnar kveðst ætla að fundurinn taki um það bil tvo klukkutíma.

Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa kemur saman í dag á opnum fundi klukkan 10.30. Birgir Ármannsson formaður nefndarinnar kveðst ætla að fundurinn taki um það bil tvo klukkutíma.

Fundinn sækir Hafsteinn Þór Hauksson, dósent í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands, sem að sögn Birgis mun fara yfir „breiðu línurnar varðandi þau stjórnskipulegu viðfangsefni“ sem nefndin fæst nú við. „Í framhaldi munum við fara yfir stöðuna fyrir gagnaöflun, sem við höfum þegar sett af stað, og athuga að hvaða leyti við þurfum að fylla inn í með því að bæta við beiðnum eða óskum um minnisblöð eða annað þess háttar,“ segir Birgir.

Ómögulegt sé að segja til um hve marga fundi þurfi til að vinna málið en búið sé að skipuleggja fundi á miðvikudag og föstudag.

„Við erum að reyna að vinna þetta hratt en þó þurfum við auðvitað að gæta þess að safna þeim upplýsingum sem að gagni geta komið við að greiða úr þessu máli og við erum einfaldlega bara á þeim stað í vinnunni núna að afla frekari gagna.“ Morgunblaðið ræddi við nokkra þá þingmenn sem komust á þing eftir endurtalninguna. Þeir eru ekki á einu máli. 4