Finnbogi Jónsson fæddist 18. janúar 1950. Hann lést 9. september 2021.

Útför hans var gerð 8. október 2021.

Gáfumaðurinn Finnbogi, landkönnuður, fjallgöngumaður og mannvinur. Fyrirmynd, heiðarlegur, hreinskilinn, hugaður, sterkur, hjarthlýr, trúr sinni sannfæringu og traustur.

Ég var svo heppinn að eiga Finnboga að góðum vini. Leiðir okkar lágu saman hjá Framtakssjóði Íslands á sínum tíma. Þetta var krefjandi tími en ótrúlega árangursríkur. Finnbogi var einn af þeim sem lagði grunninn að einstökum árangri sjóðsins. Það verður að fylgja með að grunnur árangursins var líka allt það afburðafólk sem starfaði hjá sjóðnum frá upphafi til enda á starfstíma sjóðsins. Þessu væri Finnbogi hjartanlega sammála.

Finnbogi átti farsælan feril að baki í íslensku viðskiptalífi. Ég hafði eins og fleiri fylgst með starfsferli hans í gegnum Esther elstu dóttur hans en við Esther unnum saman á sínum tíma. Síðar vorum við Esther saman í MBA-námi. Ég upplifði það hve þau feðginin voru einstaklega samheldin og samband þeirra mjög sterkt. Þau leituðu ráða hjá hvort öðru og studdu hvort annað í blíðu og stríðu. Á ólíkum vígstöðvum í skóla eða vinnu með þeim feðginum brá reglulega við sömu töktum, skoðunum og gildum. Missir þinn Esther er mikill en þú berð þá gæfu að hafa erft hans góðu kosti. Ég var þakklátur og stoltur veislustjóri í 120 ára afmæli ykkar fyrir tæpum tveimur árum og er heppinn að hafa átt ykkur að góðum vinum.

Hugurinn reikar til heimsóknar til Finnboga og Berglindar í París fyrir nokkrum árum. Hjóluðum um alla París og Finnbogi lýsti því sem fyrir augu bar. Drukkum kaffi á kaffihúsum og reyndum að leysa lífsgátuna. Finnbogi hafði mikinn áhuga á mönnum og málefnum og velti stöðu efnahagsmála mikið fyrir sér. Í París sá maður það glögglega hve miklir heimsborgarar þau Finnbogi og Berglind voru og hve samband þeirra var einstakt á allan hátt.

Sólin hefur hnigið til viðar allt of snemma hjá Finnboga vini mínum. Það var svo skemmtilegur tími að fara í hönd hjá honum og Berglindi. Söknuðurinn er mikill og eftir sitja kærar minningar um einstakan vin, góðvildina, hláturinn, vinnuferðirnar erlendis, umhyggjusemina og aðrar óteljandi gleðistundir.

Finnbogi var traustur og hélt afar þétt um sína nánustu. Elsku Berglind, Esther, Ragna og aðrir ástvinir ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi minning um yndislegan Finnboga ylja um hjartarætur um ókomna tíð.

Deyr fé,

deyja frændur,

deyr sjálfur ið sama;

en orðstír

deyr aldregi,

hveim er sér góðan getur.

(Úr Hávamálum)

Þór Hauksson.

Þegar ég kom heim til Akureyrar, eftir nokkurra ára fjarveru, hafði ég eignast tvo yndislega frændur, þá Áskel og Finnboga. Þeir voru systrasynir, fæddir með 18 daga millibili. Seinna kynntist ég Finnboga enn betur er móðir hans, ásamt Dórótheu systur hans, flutti í hús okkar Baldvins.

Ég tók miklu ástfóstri við Finnboga. Á sumrin fór hann í sveit en á veturna var hann í skóla og starfaði þá mikið í skátahreyfingunni. Eftir landspróf fór hann í Menntaskólann á Akureyri og á sumrin var hann á sjó.

Finnbogi var mikil félagsvera. Hann sinnti einnig ástamálum sínum vel, í bæinn kom ung og glæsileg stúlka frá Vestmannaeyjum, Sveinborg H. Sveinsdóttir, nemi í hjúkrunarfræði, og felldu þau fljótt hugi saman. Hún flutti heim til hans og 31. nóv. 1969 fæddist frumburður þeirra. Finnbogi sat þá uppi á fæðingardeild allan daginn og ekkert gekk. Um kvöldið átti hann að flytja ræðu í MA í tilefni 1. des. Hann hringdi því í mig og bað mig að vera hjá Sveinu á meðan hann færi heim og hefði fataskipti. Hann ætlaði svo að koma við á leiðinni upp í skóla. Við Sveina töluðum um að það væri gaman ef hún yrði búin að fæða þegar hann kæmi – og það stóð heima. Það fyrsta sem hann heyrði þegar hann kom var barnsgrátur, fædd var lítil stúlka. Það var stoltur faðir sem hélt ræðu þetta kvöld.

Eftir að hafa lokið námi hér heima flutti fjölskyldan til Svíþjóðar. Þar lauk Finnbogi námi í eðlisverkfræði og rekstrarhagfræði. Sveina lærði geðhjúkrun og heim komu þau með tvær yndislegar dætur, Esther og Sigríði Rögnu sem fæddist í Lundi.

Svo knúði sorgin dyra er Sveina greindist með krabbamein og lést aðeins 58 ára gömul.

En seinna skein hamingjan við á ný er Finnbogi kynntist Berglindi Ásgeirsdóttur og fjölskyldu hennar. Hún að ljúka sínum starfsferli sem sendiherra og hér á Akureyri ætluðu þau að búa og njóta lífsins. Húsið og nýja heimilið beið þeirra er þau kæmu frá Vancouver.

Elsku Finnbogi minn:

Hver minning dýrmæt perla að

liðnum lífsins degi,

hin ljúfu og góðu kynni af alhug

þakka hér.

Þinn kærleikur í verki var gjöf,

sem gleymist eigi,

og gæfa var það öllum, er fengu að

kynnast þér.

(Ingibjörg Sigurðardóttir)

Ég kveð Finnboga með virðingu og þökk og sendi Berglindi, Esther, Rögnu og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur.

Samúðarkveðjur senda Margrét, Ingi, Finnbogi Alfreð og Karin.

Björg Finnbogadóttir (Bella).

Skammt er á milli lífs og dauða. Minn ágæti vinur, Finnbogi Jónsson, hefur fyrirvaralaust verið hrifinn burtu frá okkur. Það eru ekki nema nokkrir mánuðir síðan við ræddum saman um okkar sameiginlegu áhugamál á sviði sjávarútvegs og fiskveiðistjórnunar. Finnbogi í fínu formi og hlakkaði til dvalarinnar í akademísku umhverfi við háskólann í Bresku Kólumbíu í Vancouver. Lögðum við í þessu samtali drög að samvinnu okkar við rannsóknir og greinaskrif. Nú er skarð fyrir skildi. Hann ekki lengur meðal vor.

Finnboga kynntist ég fyrst þegar við sátum báðir í stúdentaráði Háskóla Íslands árið 1972. Finnbogi var þá nemandi í iðnaðarverkfræði með hár niður á herðar og eindreginn vinstri maður eins og þorri háskólastúdenta á þeim árum. Vorum við Finnbogi í forystusveit þeirrar bylgju vinstri róttækni sem þá var að rísa í Háskólanum og hjaðnaði ekki í mörg ár. Með okkur í stúdentaráði var Berglind Ásgeirsdóttir eftirlifandi sambýliskona Finnboga og hans trausti bakhjarl. Hún sýndi hins vegar þá framsýni umfram okkur strákagerpin að sitja hinum megin við borðið í fylkingu Vöku.

Samvinna okkar Finnboga hófst á nýjan leik er ég kom heim frá námi árið 1980, en þá var hann orðinn skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu og hægri hönd Hjörleifs Guttormssonar þáverandi iðnaðarráðherra. Tókum við ásamt fleiri góðum mönnum höndum saman um það viðamikla verkefni að lagfæra samninga Íslands við þáverandi álrisa, Alusuisse. Eins og flest annað sem Finnbogi tók sér fyrir hendur tókst það verk prýðilega. Hagstæðari samningar voru gerðir og viðeigandi bætur greiddar þótt endanlegar málalyktir yrðu ekki fyrr en með næstu ríkisstjórn.

Síðan lágu leiðir Finnboga í Síldarvinnsluna á Norðfirði þar sem hann gegndi stöðu forstjóra í 13 ár. Þar vann hann þrekvirki við að endurskipuleggja rekstur og endurreisa fjárhag þess merka fyrirtækis og leggja því þann trausta grundvöll sem síðari forstjórar hafa nýtt til enn meiri uppbyggingar. Síldarvinnslan er nú eitt glæsilegasta sjávarútvegsfyrirtæki landsmanna. Án aðkomu Finnboga að fyrirtækinu 1986 er eins líklegt að fyrirtækið hefði farið þá leið sem mörg önnur sjávarútvegsfyrirtæki fóru á þessum árum og Neskaupstaður þá e.t.v. ekki nema svipur hjá sjón.

Skyndilegt fráfall Finnboga er áfall fyrir okkur öll. Mestur er harmur hennar Berglindar okkar, barna þeirra og barnabarna. Við Anna vottum þeim okkar innilegustu hluttekningu.

Ragnar Árnason.

Sviplegt fráfall vinar skilur eftir tómleika, sorg og söknuð. Það eru eðlileg mannleg viðbrögð þegar ekki lengur nýtur ljúfrar og gleðiríkrar samfylgdar. Þau viðbrögð kallast á við dýrmæta gjöf sem Guð hefur veitt og ekki sjálfgefin. Það vekur síðan tilfinningu einskærs þakklætis fyrir að hafa þegið slíka gjöf og fagnað henni svo lengi sem raun varð.

Saga viðburðarríkar ævi vinar er meira og minna opinber og þekkt. En löng samleið skildi eftir fleira sem fáar heimildir greina frá. Hann átti auk heldur þessa einlægni og gleði sem honum fylgdi. Óseðjandi löngun í að kanna nýjar slóðir, þræða tinda fjalla, njóta fegurðar og mannlegrar reisnar. Líkt og perlukafari sem kannar hverja skel í ákefð eftir að finna í henni dýra perlu, velti hann við steinum íslensks athafnalífs. Hvert tækifæri eftirvænting góðra hluta og happ hátíð.

Vinur átti auðvelt með að fagna með fagnendum og gráta með grátendum eins og ritað er á góðum stað. Mátti ekkert aumt sjá eða vamm sitt vita. Öfundin ekki nærtæk og jafnlítið upptekinn af eigin hag. Sá fremur í sér hvatamann að því að treysta og efla hag samfélags og þjóðar og heilinda annarra leitað í þeim efnum. Skýrast kom það fram þegar hann veitti Síldarvinnslunni í Neskaupstað forystu. Þar reyndi verulega á hæfileika stjórnanda í afar þröngri stöðu. Með samhentum hópi bar hann fyrirtækið frá bágindum til blómaskeiðs og blómi þess nú sem aldrei fyrr. Trúmennska hans, hæfileikar og eldmóður vakti aðdáun og virðingu ekki aðeins í Neskaupstað heldur um allt land. Má segja að þegar hann hvarf af þeim vettvangi hafi hugur hans orðið eftir. Austur lá leiðin oft síðari ár og vel fylgst með þróun samfélaganna og athafnalífs.

Lagði lóð sitt á vogarskálar þegar byggð var álverksmiðja við Reyðarfjörð og hafði eins og jafnan tiltækar röksemdir sem ekki var fram hjá litið. Orð hans í eyru fulltrúa Alcoa, er hann kynnti þeim fyrirtækin fyrir austan voru þau: „Ef hægt er að reka stórfyrirtæki á borð við Síldarvinnsluna, Eskju og Loðnuvinnsluna með góðum árangri, þá hefur rekstur álvers á þessu svæði ekki lakari skilyrði.“

Hann lét um sig muna. Áhrifavaldur í lífi fjölmargra og minnast samstúdentar í Menntaskólanum á Akureyri 1970 ljúfrar samfylgdar á reglubundnum samkomum í gegnum árin með miklu þakklæti. Forysta hans og skipulag ógleymanlegra móta hópsins í Rússlandi og á Siglufirði í sumar leið.

Perlurnar í lífinu auðsæjar. Eiginkona hans, Sveinborg, yndisleg atgerviskona og skyggn á fólk, var vini kjölfesta meðan hennar naut við. Augasteinar hans, dæturnar Esther og Ragna og fjölskyldur, áttu í hlýjan faðm að leita og framrétta hönd að liðsinna og styrkja eftir mætti.

Í menntaskóla ofinn vefur vináttu sem efldist og varð samofinn fjölskyldutenglum eins og nánustu ættingjar væru og með árunum innilegri.

Eftir hörmulegt fráfall Sveinborgar kynntist Finnbogi Berglindi Ásgeirsdóttur, glæsilegum fulltrúa þjóðar sinnar á erlendum vettvangi, vandaðri og hrífandi og við hjónin þakklát að hafa eignast vináttu hennar. Hún sannarlega átt veigamikinn þátt í að veita vini þá hamingju sem bros hans og viðmót geislaði af.

Víðförull, lífsglaður, skeleggur og ástríðufullur athafnamaður, traustur og gefandi vinur kvaddur og samfylgdin innihaldsríka og dýrmæta Guði þökkuð.

Guð styrki eftirlifandi ástvini og vini og blessi yndislega minningu.

Inger og Davíð

Eitt af því ánægjulegasta við starf kennarans er það að kynnast duglegum nemendum og geðþekku ungu fólki. Stundum leiðir það til ævilangrar vináttu eins og hjá okkur Finnboga. Auk þess sem hann var nemandi minn unnum við einnig saman að félagsmálum meðan hann var í námi hér heima, hann fyrir Stúdentaráð en ég fyrir SÍNE. Skoðanir okkar og viðhorf voru svo áþekk að við þurftum yfirleitt ekkert að eyða miklum tíma í að ræða hlutina. Slík vinátta og samstilling er gulls ígildi.

Þegar Finnbogi kom heim frá framhaldsnámi í Svíþjóð hóf hann störf í iðnaðarráðuneytinu í ráðherratíð Hjörleifs Guttormssonar. Leiðirnar lágu þá aftur saman þegar hann fór að ýta að mér ýmsum verkefnum á vegum ráðuneytisins, til dæmis orkusparnaði og staðarvali fyrir orkufreka stóriðju. Og Finnbogi var mér svo kær að það var erfitt að synja beiðnum hans, enda leiddu þær til samstarfs sem varð okkur báðum til ánægju því að kemían milli okkar tryggði það. Og af þessu óx líka sterk og náin vinátta tvennra hjóna því að Sigrún og Sveina heitin áttu vel saman og deildu áhugamálum sem tengdust störfum þeirra á sviði geðheilbrigðis- og velferðarmála. Samræður okkar allra um fjölskyldu-, jafnréttis- og samfélagsmál voru frjóar og fjörugar. Þær gleymast seint. Við kynntumst líka dætrum þeirra, Esther og Rögnu, sem voru oft með í för, - og það var „bónus“. Eftir að þau hjónin fluttust út á land heimsóttum við þau bæði á Akureyri og í Neskaupstað – og okkur var sannarlega tekið með kostum og kynjum. Samband Finnboga og Sveinu var líka afar heilt og einkenndist af ástríki, virðingu og samstöðu. En svo syrti í álinn með heilsu Sveinu og hún varð harmdauði fjölskyldu og vinum þegar hún lést langt um aldur fram.

En það var ánægjulegt að fylgjast með Finnboga þegar hann fann ástina aftur og sagði svo fallega frá því til dæmis í jólabréfum. Berglind Ásgeirsdóttir varð sambýliskona hans og náinn félagi. Samband þeirra varð samstillt og hamingjuríkt enda áttu þau mörg sameiginleg áhugamál.

Við sendum Berglindi, Esther, Rögnu og allri fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur.

Þorsteinn Vilhjálmsson og Sigrún Júlíusdóttir

Í dag er til moldar borinn kær vinur okkar, Finnbogi Jónsson. Við Ásta hittum þau Finnboga og Berglindi á förnum vegi fyrir stuttu, þá lék allt í lyndi og þau sáu fram á nýjan áfanga í lífinu bæði hress og kát að vanda. Lífið er oft á tíðum svo óútreiknanlegt og ósanngjarnt, sérstaklega finnur maður til þess á stundu eins og þessari þegar kær vinur fellur frá þegar hann hefði átt að sjá fram á rólegri daga og geta sinnt því óskiptur sem honum var kærast. Við sem eftir sitjum getum þó glaðst yfir ljúfum minningum um vin sem gott var að eiga að og minningum um góðan dreng sem gott var að eiga að vini.

Það var mikið lán fyrir bæjarfélagið í Neskaupstað á sínum tíma að fá Finnboga Jónsson til starfa sem framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar. Hann lagði alla sína krafta í að styrkja og efla fyrirtækið og þegar hann lét af störfum var Síldarvinnslan þegar eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, þar munu verkin lifa manninn. Finnbogi og fjölskyldan öll misstu mikið þegar eiginkona hans, Sveinborg Sveinsdóttir, féll frá langt um aldur fram árið 2004. Þau hjónin fluttu með sér ferskan blæ inn í samfélagið í Neskaupstað og létu til sín taka á mörgum sviðum og mörkuðu þar djúp spor sem seint verða máð.

Þótt við hefðum vitað hvor af öðrum um nokkurn tíma í sambærilegum störum við atvinnuþróun hófst vinátta okar þegar þau Finnbogi og Sveina fluttu til Neskaupstaðar 1986. Eðlilega voru samskipti bæjarstjóra og framkvæmdastjóra stærsta fyrirtækis bæjarins talsverð á þessum árum. Kynni okkar urðu svo enn nánari þar sem Sveina tók að sér starf félagsmálastjóra bæjarins.

Við Ásta minnumst sérstaklega allra vinafundanna, gagnkvæmra heimsókna og samverustunda með þeim Finnboga og Sveinu. Þótt slíkar stundir með Finnboga og fjölskyldu hafi orðið færri vegna breyttra aðstæðna og flutninga hafa tengslin ekki rofnað.

Kæru Berglind, Ester, Ragna og fjölskyldur, missir ykkar er mikill.

Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við kæran vin, Finnboga Jónsson.

Ásgeir og Ásta.

Það var sárt að þurfa að meðtaka það að Finnbogi félagi okkar, sem var búinn að vera okkur samferða í hálfa öld, hefði skyndilega kvatt þennan heim.

Við Finnbogi hófum saman nám í eðlisverkfræði við HÍ 1971. Eftir tveggja ára nám þar vorum við svo samferða í framhaldið til Lundar þar sem við gátum lokið náminu. Finnbogi og Sveina konan hans áttu þegar dótturina Ester og um haustið eignuðumst við Bryndís dóttur okkar Gunnhildi, þannig að þetta voru tvær ungar fjölskyldur sem settust að hvort á sínum stigaganginum á Kämnärsvägen.

Það var troðin gata á milli þessara tveggja heimila. Lundur var á þeim tíma mikil Íslendinganýlenda, þar var öflugt félagslíf og í hverfinu bjuggu flestir við svipaðar aðstæður. Við skiptumst á við barnapössun og deildum þekkingu á hvað og hvar væri hægt að versla ódýrt, hvernig við tengdumst hinu félagslega kerfi og fengjum húsnæðisbætur og barnabætur. Fjárhagurinn var enda naumur og útséð um að fjölskyldurnar gætu fjárfest í munaði eins og sjónvarpi.

Á leið okkar um bæinn gengum við Finnbogi fram á búð sem seldi notuð sjónvarpstæki og þar var nett tekkmubla með litlum, svarthvítum sporöskjulaga sjónvarpsskjá á 195 krónur sænskar. Við ákváðum snarlega að fjárfesta sameiginlega í þessum grip þannig að hvor fjölskyldan gæti notið hans aðra hverja viku. Við bárum tækið á milli okkar og eftir snarpar samningaviðræður milli Finnboga og strætóstjóra sem vildi láta okkur greiða töskugjald fyrir gripinn (þið sem þekktuð Finnboga vitið hvernig þær enduðu), komumst við heim á leið með sjónvarpið. Á hverjum fimmtudegi var svo skiptidagur og þá mátti sjá okkur félagana berandi sjónvarpið milli íbúðanna.

Að loknu verkfræðináminu fórum við svo mismunandi leiðir. Finnbogi bætti við sig hagfræðinámi, flutti til Íslands og hóf störf hjá iðnaðarráðuneyti en helgaði sig svo þróun og rekstri fyrirtækja, en við ílentumst í Lundi. Eftir það sáu forlögin til þess að við værum aldrei um lengri tíma á sama stað á jarðarkringlunni. En þótt langur tími gæti liðið á milli þá var það alltaf mikil hátíð og gleði þegar við náðum að hittast.

Þegar Sveina féll frá um aldur fram var það mikill missir og hennar var sárt saknað. Það var svo gæfa Finnboga eftir tíma missis og sorgar að hann náði að stofna til kynna við Berglindi og það var gaman að fylgjast með hvernig þau náðu að njóta lífsins saman með ýmsum hætti og kynnin við þau saman urðu bæði gefandi og skemmtileg.

Á síðari árum kom það stundum fyrir að við vorum samtímis í sumarbústöðum okkar í Vatnsendahlíð og gerðum ráð fyrir að þar myndum við hittast oftar þegar um hægðist. Það er erfið tilhugsun að eiga ekki lengur von á að Finnbogi birtist okkur óvænt með fylgdarliði á fallegu sumarkvöldi í Skorradal.

Við Bryndís vottum Berglindi, börnum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúð.

Guðni A. Jóhannesson.