Afsögn Kurz ávarpaði þjóðina í sjónvarpsútsendingu á laugardagskvöld.
Afsögn Kurz ávarpaði þjóðina í sjónvarpsútsendingu á laugardagskvöld. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fréttaskýring Skúli Halldórsson sh@mbl.is Alexander Schallenberg, utanríkisráðherra Austurríkis, sagði í gær að „gífurlega krefjandi verkefni“ biði sín eftir að kanslarinn Sebastian Kurz tilnefndi hann sem arftaka sinn í beinu sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar á laugardagskvöld.

Fréttaskýring

Skúli Halldórsson

sh@mbl.is

Alexander Schallenberg, utanríkisráðherra Austurríkis, sagði í gær að „gífurlega krefjandi verkefni“ biði sín eftir að kanslarinn Sebastian Kurz tilnefndi hann sem arftaka sinn í beinu sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar á laugardagskvöld.

Kurz, sem 35 ára að aldri hefur verið einn af yngstu leiðtogum Evrópu – og skærasta ungstirni austurrískra stjórnmála, tilkynnti á sömu stundu að hann viki úr embætti kanslara.

Afsögnin kemur í kjölfar þess að kanslarinn var vændur um spillingu, en greint var frá því um miðja síðustu viku að hann sætti rannsókn vegna gruns um að hafa nýtt almannafé til að tryggja sér hagfellda umfjöllun í götublaðinu Österreich .

Stýrt tveimur ríkisstjórnum

Grunur leikur á um að á árunum 2016 og til 2018 hafi fjármunir úr fjármálaráðuneyti landsins verið notaðir til þess að greiða fyrir hagfelldar skoðanakannanir. Þessar skoðanakannanir hefðu eingöngu þjónað pólitískum hagsmunum Þjóðarflokksins, flokks þeirra Kurz og Schallenberg, og birst í götublaðinu Österreich.

Tímasetning þessara meintu fjárútláta skarast á við það tímabil þegar Kurz komst til valda í Þjóðarflokknum og leiddi hann í ríkisstjórnarsamstarf með Frelsisflokknum. Síðan þá hefur hann stýrt tveimur ríkisstjórnum; með Frelsisflokknum frá 2017 til 2019, og með Græningjum frá janúar á síðasta ári.

Kogler styður Schallenberg

Schallenberg, sem er 52 ára, kom til fundar við forsetann Alexander Van der Bellen í gær, eftir að hafa rætt við varakanslarann Werner Kogler, formann samstarfsflokksins Græningja. Fyrir fundinn talaði hann um „gríðarlega erfiða tíma“, sem ekki væru auðveldir nokkrum þeirra.

„En ég held að við séum að sýna ótrúlega mikla ábyrgð fyrir hönd þessa lands,“ tjáði hann viðstöddum blaðamönnum.

Hinn 59 ára Kogler sagðist umfram allt ánægður með að mögulegt væri að opna nýjan kafla í ríkisstjórnarsamstarfinu.

Hann hafði þegar gefið til kynna síðla kvölds á laugardag að flokkur hans styddi Schallenberg til að leiða áfram samstarf flokkanna í ríkisstjórn.

Kurz hefur hafnað öllum ásökunum og ítrekaði í ávarpi sínu að ásakanirnar hefðu ekki við neitt að styðjast. Hann myndi reyna að gera hreint fyrir sínum dyrum á sama tíma og hann heldur áfram formennsku í flokknum og setu á þingi.

Heldur áhrifum sínum að sinni

Stjórnmálaskýrandinn Thomas Hofer segir Kurz munu halda áfram, að minnsta kosti að sinni, að vera áhrifamesta manneskjan í Þjóðarflokknum á landsvísu.

„Kurz lítur á Schallenberg sem staðgengil. Hann leysti þetta á þann hátt að hann heldur enn um valdataumana í flokknum og er með ríkisstjórnarliðið á bak við sig,“ segir Hofer í samtali við AFP-fréttaveituna.

Stjórnarandstaðan hefur á sama tíma mótmælt áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfi í ljósi yfirstandandi rannsóknar. Formaður Sósíaldemókrata, Pamela Rendi-Wagner, hefur látið hafa eftir sér að Kurz muni einfaldlega halda áfram sem „skuggakanslari“.

Kurz skaust hratt upp á stjörnuhimin austurrískra stjórnmála fyrir áratug, eða árið 2011, en þá tók hann aðeins 24 ára við embætti ráðherra aðlögunarmála. Tveimur árum síðar varð hann utanríkisráðherra og gegndi því embætti allt fram í desember árið 2017, er hann varð kanslari eftir kosningasigur, þá 31 árs. Myndaði hann þá stjórn með Frelsisflokknum.

Hneykslismál árið 2019

Því stjórnarsamstarfi lauk árið 2019, eftir að upp komst að formaður Frelsisflokksins og varakanslarinn Heinz-Christian Strache hefði rætt við konu sem þóttist vera frænka rússnesks auðkýfings.

Sagðist hún vera að leita að fjárfestingartækifærum í Austurríki og bauðst til að kaupa helmingshlut í dagblaðinu Kronen Zeitung til að breyta ritstjórnarstefnu þess og sjá til þess að blaðið styddi Frelsisflokkinn. Strache tók vel í boðið og sagðist meðal annars myndu sjá til þess að fyrirtæki hennar fengi samninga um opinberar framkvæmdir.

Vantraustsyfirlýsing var í kjölfarið samþykkt á hendur ríkisstjórn Kurz, í maí 2019.