Nöfn Ný nöfn bætast jafnt og þétt við á mannanafnaskrá. Úr safni.
Nöfn Ný nöfn bætast jafnt og þétt við á mannanafnaskrá. Úr safni. — Morgunblaðið/Ásdís
Mannanafnanefnd samþykkti mörg ný mannanöfn þann 12. október og ákvað að þau yrðu færð á mannanafnaskrá. Nokkrum beiðnum um ný eiginnöfn og millinöfn var hafnað.

Mannanafnanefnd samþykkti mörg ný mannanöfn þann 12. október og ákvað að þau yrðu færð á mannanafnaskrá. Nokkrum beiðnum um ný eiginnöfn og millinöfn var hafnað.

Ný nöfn sem voru samþykkt voru kvenkynsnöfnin Skúa, Rosemarie, Dýrlaug, Kateri, Elika, Annarósa, Emi og Manley.

Af karlkynsnöfnum var eiginnafnið Hunter samþykkt og einnig nöfnin Varði, Úrsúley, Ói, Kristan, Elliott, Kristóbert, Zíon, Arne og Kalli.

Þá var beiðni um millinafnið Ármúla var samþykkt.

Beiðni um eiginnafnið Hel (kvk.) var hins vegar hafnað og sömuleiðis beiðni um millinöfnin Thunderbird og Street.

Þá ákvað mannanafnanefnd að eiginnafnið Villiljós, sem er kynhlutlaust, skyldi tekið af mannanafnaskrá. Hins vegar var beiðni um millinafnið Villiljós samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Helstu verkefni mannanafnanefndar eru að semja mannanafnaskrá um eiginnöfn og millinöfn sem teljast heimil samkvæmt lögum um mannanöfn. Nefndin veitir einnig ráðgjöf um nafngjafir og sker úr álita- og ágreiningsefnum um nöfn, nafnritun og fleira þess háttar.

gudni@mbl.is