Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Skýrslutökur fyrir dómi vegna kynferðislegs ofbeldis gagnvart börnum sem fram fara í Barnahúsi voru nær tvöfalt fleiri á fyrstu níu mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra.

Ómar Friðriksson

omfr@mbl.is

Skýrslutökur fyrir dómi vegna kynferðislegs ofbeldis gagnvart börnum sem fram fara í Barnahúsi voru nær tvöfalt fleiri á fyrstu níu mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Þær voru 133 frá janúar til september í ár en voru 73 á sama tímabili í fyrra og 61 á árinu 2019.

Þetta kemur fram í tölum Barnaverndarstofu um þjónustu í Barnahúsi. Skýrslutökum vegna líkamlegs og heimilisofbeldis hefur einnig fjölgað mikið að undanförnu.

Á fyrstu sex mánuðum ársins 2021 voru skýrslutökur vegna kynferðislegs ofbeldis fleiri en allt árið 2018 og allt árið 2019 og nánast jafnmargar og í fyrra. Þá segir í skýrslu Barnaverndarstofu að fjöldi skýrslutaka vegna kynferðislegs ofbeldis á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 hafi verið 56,4% fleiri en allt árið 2018, 26,7% fleiri en allt árið 2019 og 15,6% fleiri en allt árið 2020. 4