[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Innanyfir“ er heiti samsýningar Áslaugar Írisar Katrínar Friðjónsdóttur (f. 1981) og Steingríms Gauta Ingólfssonar (f. 1986) sem verður opnuð í Gallery Porti, Laugavegi 23b, kl. 17 í dag.
„Innanyfir“ er heiti samsýningar Áslaugar Írisar Katrínar Friðjónsdóttur (f. 1981) og Steingríms Gauta Ingólfssonar (f. 1986) sem verður opnuð í Gallery Porti, Laugavegi 23b, kl. 17 í dag. Áslaug vinnur með efnivið sem á rætur í náttúru og í byggingariðnaði og stuðlar jafnframt að hugrenningatengslum við umhverfi okkar, mótun þess og skipulag. Steingrímur Gauti nálgast málverkið af alúð og léttleika og leikur í verkunum með grunnspurningar um myndlist og fagurfræði. Bæði hafa þau sýnt verk sín víða á undanförnum árum.