Vettvangurinn Tæknideildarmaður lögreglu rannsakar vettvang ódæðisins í miðbæ Kongsberg í gær undir vökulu auga samstarfsmanns síns. Fimm liggja í valnum eftir mannskæðasta voðaverk í Noregi síðan 22. júlí 2011.
Vettvangurinn Tæknideildarmaður lögreglu rannsakar vettvang ódæðisins í miðbæ Kongsberg í gær undir vökulu auga samstarfsmanns síns. Fimm liggja í valnum eftir mannskæðasta voðaverk í Noregi síðan 22. júlí 2011. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Nýjar upplýsingar um tæplega fertugan danskan ríkisborgara, sem hefur játað á sig víg fjögurra kvenna og karlmanns í Kongsberg í Noregi í fyrradag, hafa hrannast upp fyrir augum norsku þjóðarinnar eftir því sem upplýsingar fjölmiðla verða fyllri og ítarlegri gegnum blaðamannafundi og aðrar leiðir.

Atli Steinn Guðmundsson

atlisteinn@mbl.is

Nýjar upplýsingar um tæplega fertugan danskan ríkisborgara, sem hefur játað á sig víg fjögurra kvenna og karlmanns í Kongsberg í Noregi í fyrradag, hafa hrannast upp fyrir augum norsku þjóðarinnar eftir því sem upplýsingar fjölmiðla verða fyllri og ítarlegri gegnum blaðamannafundi og aðrar leiðir.

Í gærmorgun greindi Ole Bredrup Sæverud, lögreglustjóri suðausturumdæmis norsku lögreglunnar, meðal annars frá því á blaðamannafundi, að hinn handtekni, sem beitti boga og örvum við ódáð sína, auk vopna sem lögregla vill ekki tjá sig um, hefði einhvern tímann á síðustu árum snúist til öfgahliðar íslamstrúar og gerst svo handgenginn bókstafnum, að lögreglu hefðu borist ábendingar um að full ástæða væri til að gjalda varhug við.

PST kunnugt um hann áður

Þær ábendingar, auk sakaferils, sem meðal annars fól í sér líflátshótanir í garð tveggja náinna ættingja og vopnaburð á heimili að minnsta kosti annars þeirra, leiddu þó ekki til annars en að manninum var dæmt sex mánaða nálgunarbann gagnvart ættingjunum tveimur og rauf það reyndar minnst einu sinni án þess að sérstakar afleiðingar fylgdu.

Enn fremur kom það upp úr kafinu í gær, að öryggislögreglunni PST, sem fyrst og fremst hefur öryggi norska ríkisins, æðstu embættismanna þess og stofnana á sinni könnu, var kunnugt um ódæðismanninn löngu áður en hann lét til skarar skríða í Kongsberg, en áhugi þeirrar stofnunar beinist almennt ekki að mönnum nema ætla megi að þeir teljist varhugaverðir í meira lagi.

„Lögreglan ætti að vita vel hver þessi persóna er og ég vona innilega að þið bregðist við af athygli áður en mannslíf tapast eða einhver bíður varanlegt tjón.“ Þessi orð er meðal annars að finna í skýrslu, sem æskuvinur árásarmannsins gaf lögreglu er hann gekk á hennar fund árið 2017, felmtri sleginn yfir því hvaða mann gamli vinurinn hafði að geyma er þar var komið sögu.

Eftir því sem vinurinn greinir norska ríkisútvarpinu NRK frá, ákvað hann að ganga á fund lögreglu eftir að honum bárust skilaboð á Facebook frá Dananum þar sem hann kvaðst vera sendiboði og hefði aðvörun fram að færa. „Er það virkilega þetta sem þið viljið? Fyrir alla, sem vilja gera upp eftir sig, er stundin runnin upp,“ sagði meðal annars í upptöku með myndskeiði.

Alvarlega veikur á geði

Vininum hafi þá skilist að hér átti veikur maður í hlut og heimsótti hann lögregluna í þeirri viðleitni að koma til hjálpar. Gekk hann þar bónleiður til búðar þar sem lögreglan kvaðst hafa góða stjórn á vini hans og engin ástæða væri til að hafa áhyggjur.

„Hann er búinn að vera eins og tifandi tímasprengja í mörg ár,“ sagði tilkynnandinn við NRK í gær, inntur eftir því hvað hann hugsaði nú, fjórum árum síðar. „Hann hefur þarfnast hjálpar, en ekki fengið hana. Þetta er auðvitað skelfilega dapurlegt fyrir þá sem nú eiga um sárt að binda, aðstandendur fórnarlamba hans í þessu máli og bara alla,“ sagði hann enn fremur.

Annar viðmælandi NRK , sem þekkir vel til árásarmannsins, segir snúning hans til íslamstrúar ekki hafa nokkurn skapaðan hlut með málið að gera. „Þetta snýst um manneskju, sem er alvarlega veik á geði og hefur verið utangarðs frá barnæsku. Nokkuð, sem hefur litað allt líf þeirra, sem standa honum nærri,“ sagði viðmælandinn sá.

Kvað hann vel mega taka þá umræðu, hvort þröskuldurinn væri of hár í norsku heilbrigðiskerfi fyrir inngrip og þvingunarráðstafanir í garð fólks, sem augljóslega er hættulegt sjálfu sér og öðrum og þarfnast bráðrar hjálpar, þrátt fyrir að óska ekki eftir henni að eigin frumkvæði.

Slá ekki hryðjuverki föstu

Áberandi í umræðu síðasta sólarhringinn er hvort um hryðjuverk hafi verið að ræða í Kongsberg og gaf PST það út í fréttatilkynningu í gær, að árásin bæri öll einkenni þess. „Rannsóknin, sem suðausturumdæmið stjórnar núna, mun leiða nánar í ljós hvaða hvatir bjuggu að baki atburðinum,“ segir í tilkynningunni og vill öryggislögreglan því að minnsta kosti ekki kveða upp úr um þetta atriði enn sem komið er. Kemur þar enn fremur fram að ekki þyki ástæða til að hækka það viðbúnaðarstig, sem á norsku kallast trusselnivå , ógnarstig bókstaflega, og verður það því áfram í meðallagi eins og fram að árásinni í Kongsberg.